Sigmundur Davíð: Engin fjárhagsleg tengsl við Björn Inga Hrafnsson og er mjög brugðið

sigmundur.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna til­rauna til að kúga fé út úr hon­um. Þar segir hann að bréf hafi verið sent á heim­ili hans, í umslagi merkt eig­in­konu hans. Þar hafi verið skrifað að ef Sig­mundur Davíð myndi ekki greiða nokkrar millj­ónir króna myndu fjöl­miðlar fá upp­lýs­ingar sem ættu að reyn­ast honum skað­leg­ar. Hann segir að af bréf­inu virð­ast umræddar upp­lýs­ingar byggja á get­gátum og sögu­sögn­um.

"Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hót­an­anna er rétt að taka fram að ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt," segir Sig­mundur Davíð enn frem­ur.

Yfir­lýs­ingin í heild sinni:

Auglýsing

Fyrir fáeinum dögum barst bréf á heim­ili fjöl­skyldu minn­ar, í umslagi merktu eig­in­konu minni. Í bréf­inu var því hótað að birtar yrðu opin­ber­lega upp­lýs­ingar sem reyn­ast myndu skað­legar ef ég greiddi ekki millj­ónir króna til bréf­rit­ara og sam­verka­manns hans.

Af bréf­inu að dæma virt­ust umræddar upp­lýs­ingar byggja á get­gátum og sögu­sögn­um. Áréttað var í bréf­inu að ef ekki yrði gengið að kröf­un­um, eða ef lög­reglu yrði gert við­vart, yrði séð til þess að fjöl­miðlar fengju málið til umfjöll­unar og sagð­ist bréf­rit­ari geta tryggt að sú umfjöllun yrði öll hin versta.

Ég gerði lög­reglu að sjálf­sögðu strax við­vart og leysti hún málið af mik­illi fag­mennsku. Ég vil færa lög­regl­unni kærar þakkir fyrir vel unnin störf.

Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hót­an­anna er rétt að taka fram að ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt.

Fjöl­skyldu minni er veru­lega brugðið vegna þess­ara atburða. Ég vil hvetja til hóf­stilltrar umræðu um málið og minni á að grun­aðir ger­endur eiga ætt­ingja og vini sem liðið geta fyrir umfjöll­un­ina.

Fjöl­miðla bið ég að sýna skiln­ing á því að ég mun ekki veita við­töl um málið að minnsta kosti á meðan rann­sókn þess er ekki að fullu lok­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None