Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hefur óskað eftir því að kallaður verði saman hópur ráðuneytisstjóra og fulltrúa viðeigandi stofnanna til að fara yfir þá stöðu sem skapast hefur á Siglufirði og í Ólafsfirði vegna óvenju mikilla rigninga undanfarna daga.
Þær hafa meðal annars valdið vatns- og aurflóðum á svæðinu. Hópnum er ætlað að meta hvernig bregðast megi við, meðal annars í samráði við bæjaryfirvöld í Fjallabyggð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
„Þarna hafa átt sér stað mjög óvenjulegir atburðir. Nauðsynlegt er að bregðast skjótt við, fara yfir stöðuna með okkar lykilstofnunum og meta hugsanleg viðbrögð. Það munum við gera í góðri samvinnu við heimamenn,“ segir Sigmundur Davíð í tilkynningu ráðuneytisins.