Síminn gefur ekkert upp um enska boltann - Spennandi útboð

gylfi_sig_kjarninn.jpg
Auglýsing

„Enski bolt­inn er í útboði nú í nóv­em­ber með rétt­inn til þriggja ára frá og með haustinu 2016. Sím­inn fylgist spenntur með öllum spenn­andi útsend­ing­ar­rétt­u­m,“ segir í form­legu svari Gunn­hildar Örnu Gunn­ars­dótt­ur, upp­lýs­inga­full­trúa Sím­ans, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um það, hvort Sím­inn eða SkjárEinn ætli sér að bjóða í rétt­inn til útsend­inga á ensku úrvals­deild­inni.

365 miðlar eru með útsend­inga­rétt­inn á ensku úrvals­deild­inni fram til hausts 2016. Lík­legt er að nokkuð hörð sam­keppni verði um rétt­inn að þessu sinni, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, og þá á milli 365 og Sím­ans.

365 hefur haft réttinn til útsendinga á ensku úrvalsdeildinni hér á landi um árabil, og hefur hug á því að endurnýja hann. Búast við nokkurri samkeppni um réttinn að þessu sinni. 365 hefur haft rétt­inn til útsend­inga á ensku úrvals­deild­inni hér á landi um ára­bil, og hefur hug á því að end­ur­nýja hann. Búast við nokk­urri sam­keppni um rétt­inn að þessu sinn­i.

Auglýsing

 

Á Norð­ur­lönd­unum er hart barist um rétt­inn og er búist við því að met­upp­hæðir verði greiddar fyrir rétt til útsend­inga til þriggja ára frá hausti 2016. ­Sam­kvæmt skrifum VG í Nor­egi, er reiknað með því að greiða þurfi yfir millj­arð norskra króna, eða um fimmtán millj­arða króna á núver­andi gengi, fyrir rétt til útsend­ingar þar í landi en mik­ill áhugi er á enska bolt­anum í Nor­egi, eins og hér á landi. Sé mið tekið af þeirri upp­hæð sem nefnd er í umfjöllun VG, og hún sett hlut­falls­lega niður á íslenskan markað miðað við mun á íbúa­fjölda, þá gæti rétt­ur­inn á útsend­ingum enska bolt­ans hér á landi til þriggja ára farið á tæpan millj­arð króna.

Síminn hefur opnað SkjaEinn á nýjan leik, en selur áskrifendum aðgang að efnisveitu. Sím­inn hefur opnað SkjaEinn á nýjan leik, en selur áskrif­endum aðgang að efn­isveit­u.

Sím­inn er sem kunn­ugt er á leið á mark­að, en fjár­hags­staða félags­ins, eftir end­ur­skipu­lagn­ingu, er sterk. Eigið fé félags­ins er tæp­lega 30 millj­arðar króna. Almennt útboð á bréfum Sím­ans til fjár­festa fer fram 5. til 7. októ­ber, en það er Arion banki sem er að selja á bil­inu 18 til 21 pró­sent í félag­inu. Búist er við því að við­skipti með bréf félags­ins í kaup­höll geti haf­ist 15. októ­ber.

Fjár­hagur 365 er einnig sterk­ur, sé horft til árs­reikn­ings félags­ins fyrir árið 2013, en þá nam eigið fé félags­ins 3,3 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None