Síminn vill greiða hluthöfum 31,5 milljarða vegna sölunnar á Mílu – og svo sennilega meira

Franska fyrirtækið Ardian er búið að gera upp við Símann vegna kaupanna á Mílu. Síminn ætlar að leggja tillögu um að greiða hluthöfum 31,5 milljarða króna af söluandvirðinu fyrir hluthafafund í lok október.

Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Auglýsing

Hlut­hafar Sím­ans munu taka afstöðu til þess undir lok októ­ber­mán­aðar hvort lækka skuli hlutafé félags­ins um 31,5 millj­arða króna og greiða þá upp­hæð út til hlut­hafa, í kjöl­far þess að fyr­ir­tækið fékk greiðslu frá franska fyr­ir­tæk­inu Ardian fyrir Mílu.

Þetta kemur fram í kaup­hall­ar­til­kynn­ingu frá Sím­anum í dag, en þar segir að Sím­inn hafi fengið greitt að fullu fyrir Mílu. Ardian greiddi ann­ars vegar 32,7 millj­arða króna í reiðufé og svo 17,5 millj­arða króna í formi fram­selj­an­legs skulda­bréfs til þriggja ára.

Auglýsing

Stefnt er að því að halda hlut­hafa­fund þar sem afstaða verður tekin til þess­arar 31,5 millj­arða greiðslu til hlut­hafa þann 26. októ­ber.

Einnig segir Sím­inn frá því að til skoð­unar sé að selja skulda­bréfið eða eftir atvikum greiða and­virði þess út til hlut­hafa, en að gera megi ráð fyrir að til­laga þess efnis verði tekin fyrir á öðrum hlut­hafa­fundi.

Ætl­aður sölu­hagn­aður Sím­ans af við­skipt­unum með Mílu er nú sagður 37,8 millj­arðar króna að teknu til­liti til alls kostn­aðar vegna við­skipt­anna og upp­færðrar áætl­unar um veltu­fjár­muni og skuldir Mílu.

Stoðir og líf­eyr­is­sjóðir stærstu hlut­hafar

Fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir var stærsti ein­staki hlut­hafi Sím­ans í lok ágúst, með 15,92 pró­senta hlut. Félagið má því vænta þess að fá rúma 5 millj­arða greidda út ef hlut­hafar Sím­ans sam­þykkja að lækka hlutafé félags­ins með þeim hætti sem lagt er til.

Nær allir aðrir stærstu hlut­hafar Sím­ans eru líf­eyr­is­sjóð­ir, en Líf­eyr­is­sjóður Verzl­un­ar­manna fer með 11,89 pró­senta hlut, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins með 10,91 pró­sent og Gildi Líf­eyr­is­sjóður á 7,78 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent