Sitjandi þingmanni sem vildi verða sveitarstjóri hafnað – Ekki á meðal sex efstu

Ásmundi Friðrikssyni, sem ætlaði sér að verða oddviti Sjálfstæðisflokks í Rangárþingi ytra, var hafnað með afgerandi hætti í prófkjöri flokksins þar sem fram fór í gær.

Ásmundur Friðriksson
Auglýsing

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, var ekki á meðal sex efstu í próf­kjöri flokks­ins í Rangár­þingi ytra sem fram fór í gær. Hann hafði sóst eftir því að leiða list­ann og vildi verða næsti sveit­ar­stjóri í sveit­ar­fé­lag­inu.

Ingvar Pétur Guð­björns­son sigr­aði í próf­kjör­inu og fékk 219 af 400 gildum atkvæð­um. Aðrir sem röð­uðu sér í efstu fjögur sætin fengu auk þess 94 atkvæði í fyrsta sætið sem þýðir að í mesta lagi rúmur fimmt­ungur kaus Ásmund í odd­vita­sæt­ið. 

Kjarn­inn greindi frá mögu­legu fram­boði hans 26. jan­úar síð­ast­lið­inn, nokkrum dögum áður en hann til­kynnti það form­lega. Þá hafði Ásmundur flutt lög­heim­ili sitt til Hellu, en hann var áður skráður til heim­ilis í Reykja­nes­bæ. Ásmundur sagði að hann hefði fengið hvatn­ingu um að bjóða sig fram í Rangár­þingi ytra, sem er sterkt vígi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann er með hreinan meiri­hluta í Rangár­­þingi ytra í dag eftir að hafa fengið yfir 62 pró­­sent atkvæða í sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­unum árið 2018.

Auglýsing
Ásmundur sagði við Kjarn­ann að þetta væri ekki í fyrsta sinn frá því að hann sett­ist á þing árið 2013 sem ein­hverjir hefðu leitað til hans fyrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingar um að hella sér aftur í sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­málin og af því hafi ekki orðið til þessa. Áður en Ásmundur sett­ist á þing var hann bæj­­­ar­­stjóri í Garði á Reykja­­nesi frá 2009-2012.

Hann sagði enn fremur að ef hann yrði sveit­­ar­­stjóri í Rangár­­þingi ytra í kjöl­far kosn­inga myndi það þýða að hann myndi víkja af Alþingi.

Ásmundur var kjör­inn fyrir hönd Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins í kosn­­ing­unum í fyrra­haust í þriðja skipti frá því hann náði fyrst kjöri árið 2013 og er sjötti þing­­maður Suð­­ur­­kjör­­dæm­­is.

Fyrsti vara­­þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins í Suð­­ur­­kjör­­dæmi er Björg­vin Jóhann­es­­son.

Röð sex efstu sæta eftir loka­nið­ur­stöður próf­kjörs­ins er eft­ir­far­and­i: 

  1. sæti: Ingvar Pétur Guð­björns­son með 219 atkvæði.
  2. sæti: Eydís Þor­björg Ind­riða­dóttir með 184 atkvæði í 1.-2. sæti.
  3. sæti: Björk Grét­ars­dóttir með 194 atkvæði í 1.-3. sæti.
  4. sæti: Þröstur Sig­urðs­son með 213 atkvæði í 1.-4. sæti.
  5. sæti: Svavar Leó­pold Torfa­son með 235 atkvæði í 1.-5. sæti.
  6. sæti: Sóley Mar­geirs­dóttir með 254 atkvæði í 1.-6. sæti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent