Sjálfstæðisflokknum snýst hugur – Ætla að fara í almennt prófkjör

Í desember ákvað fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík að halda svokallað leiðtogaprófkjör fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Nú hefur því snúist hugur og ráðið ætlar að leggja til almennt prófkjör 12. mars næstkomandi.

Hildur Björnsdóttir hefur enn sem komið er ein lýst yfir áhuga á að leiða lista Sjálfstæðisflokks í komandi borgarstjórnarkosningum.
Hildur Björnsdóttir hefur enn sem komið er ein lýst yfir áhuga á að leiða lista Sjálfstæðisflokks í komandi borgarstjórnarkosningum.
Auglýsing

Stjórn Varð­ar, full­trúa­ráðs sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík, ákvað á fundi sínum í kvöld að leggja fram til­lögu um að boða til almenns próf­kjörs fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar, sem fara fram í maí. Til­lagan verður lögð fyrir full­trúa­ráðs­fund í flokknum sem hald­inn verður í Val­höll eftir viku, 10. febr­ú­ar. Full­­­­trú­a­ráð Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks­ins þarf að sam­­­­þykkja leið­ina til að hún verði að veru­­­­leika með ein­földum meiri­hluta atkvæða.

Verði hún sam­þykkt mun próf­kjörið fara fram 12. mars næst­kom­andi og kjör­skrá afmörkuð við flokks­skrá tveimur vikum fyrir kjör­dag.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Verði sem send var út í kvöld.

Um við­snún­ing er að ræða. Á fundi hjá Verði, sem fram fór þann 15. des­em­ber, var sam­­þykkt til­­laga um að halda svo­­kallað leið­­toga­­próf­­kjör í Reykja­vík eins og fyrir borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar 2018. 

Auglýsing
Hefði sú leið gengið eftir hefði verið kosið í kjör­­­­nefnd til að fylla önnur sæti á list­an­­um og almennir flokks­­menn hefðu því ein­ungis fengið að segja skoðun sína á því hver myndi leiða list­ann.

Ein­ungis einn fram­­bjóð­andi hefur enn sem komið er gefið kost á sér til að leiða list­ann, en það er Hildur Björns­dóttir borg­­ar­­full­­trúi. Hún hefur sagt að hún von­að­ist eftir því að flokk­­ur­inn myndi halda opið próf­­kjör um efstu sæti á lista. Eyþór Arn­alds odd­viti flokks­ins í Reykja­vík hætti við fram­­boð sitt skömmu eftir að Vörður sam­­þykkti að leggja til leið­­toga­­próf­­kjör­ið. Honum leist vel á að halda leið­­toga­­próf­­kjör, eftir að sú til­­laga kom fram.

Marta Guð­jóns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi flokks­ins, hefur sagt að hún sé að íhuga að sækj­ast eftir leið­toga­sæti en er ekki búin að taka end­an­lega ákvörð­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent