Dregur framboðið til baka – „Unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einkalífi“

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir hefur ákveðið að draga framboð sitt til formennsku í SÁÁ til baka. Hún og Kári Stefánsson segja sig jafnframt úr aðalstjórn samtakanna.

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Auglýsing

Þóra Kristín Ásgeir­s­dótt­ir, upp­­lýs­inga­­full­­trúi Kára Stef­áns­­sonar for­­stjóra Íslenskrar erfða­­grein­ing­­ar, sem bauð sig fram til for­­mennsku í SÁÁ fyrr í vik­unni hefur dregið fram­boðið til baka og sagt sig úr aðal­stjórn sam­tak­anna.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu hennar í dag en sam­kvæmt Þóru Krist­ínu hefur Kári einnig sagt sig úr aðal­stjórn SÁÁ.

„Eftir að 40 manns úr 48 manna stjórn SÁÁ skor­uðu á mig að fara í fram­boð til for­manns SÁÁ lét ég slag standa enda um stórt og spenn­andi verk­efni að ræða á sviði sem varðar eitt mik­il­væg­asta mál sam­fé­lags­ins. Fjöldi fólks lét í sér heyra og hvatti mig áfram og það þótti mér vænt um.

Ég vissi fyr­ir­fram að það ríkir hálf­gert stríðs­á­stand í þessum sam­tökum og hef ég ekki farið var­hluta af því þótt það sé barist að tjalda­baki. Nú er unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einka­lífi og þar er af nógu að taka enda hef ég líkt og aðrir sem hafa farið í áfeng­is­með­ferð, lent á vegg í líf­inu og gert og sagt hluti sem ég er ekki stolt af,“ skrifar hún.

Auglýsing

Þóra Kristín segir jafn­framt að það sé sýnu alvar­legra að fyrr­ver­andi stjórn­endur SÁÁ séu líka að hlaða í bál­köst á sam­fé­lags­miðlum fyrir Kára Stef­áns­son yfir­mann hennar og náinn vin sem hafi einnig gert margt í sinni for­tíð undir áhrifum áfengis sem hann hefði betur látið ógert og sitji líkt og hún í aðal­stjórn SÁÁ og sé löngu hættur að drekka.

Vildi stilla til friðar – en ekki auka á ófrið­inn

„Þá hefur einnig verið reynt að gera það tor­tryggi­legt að ég sem starfs­maður Íslenskrar erfða­grein­ingar og Kári Stef­áns­son séum að láta til okkar taka í starfi SÁÁ vegna sam­starfs við sjúkra­hús sam­tak­anna um rann­sókn­ir.

Ég lýsti því strax yfir að ég ætl­aði ekki að fara í fullt starf sem for­mað­ur, heldur halda áfram með líf mitt og stjórna sam­tök­unum með þvi góða fólki sem situr í fram­kvæmda­stjórn. Löngun mín var að stilla til friðar en ekki að auka á ófrið­inn. Ég ætla því ekki að leggj­ast í stríðs­rekstur og vil hvorki fórna starfi mínu né æru minni og yfir­manns míns fyrir sjálf­boða­vinnu fyrir sam­tök­in,“ skrifar hún.

Þóra Kristín dregur fram­boð sitt til baka til for­mennsku og setu í fram­kvæmda­stjórn í von um að þau finni sér for­mann sem sé óum­deild­ur. „Hættan er sú að að það sé erfitt í sam­tökum þar sem meiri­hlut­inn hefur átt við áfeng­is­vanda að stríða ein­hvern hluta ævinnar og verið ger­endur og þolendur allskyns ofbeld­is, flestir hvortveggja. Bæði ég og Kári Stef­áns­son segjum okkur þar með úr aðal­stjórn sam­tak­anna.“

Eftir að 40 manns úr 48 manna stjórn SÁÁ skor­uðu á mig að fara í fram­boð til for­manns SÁÁ lét ég slag standa enda um...

Posted by Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir on Thurs­day, Febru­ary 3, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent