Sjálfstæðisflokkur og Píratar bæta vel við sig en Vinstri græn tapa umtalsverðu fylgi

Stjórnarflokkarnir mælast með minna sameiginlegt fylgi en þeir fengu í kosningunum í fyrrahaust. Tveir mælast í kjörfylgi en einn, Vinstri græn, langt undir því. Tveir stjórnarandstöðuflokkar hafa bætt við sig samtals 7,3 prósentustigum síðan í haust.

Katrín Þórhildur Bjarni
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig 2,6 pró­sentu­stigum milli mán­aða og mælist langstærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt nýrri könnun Mask­ínu með 24,5 pró­sent fylgi. Píratar eru hins vegar sá flokkur sem bætir mest við sig milli mán­aða og fara úr 10,3 í 13,7 pró­sent, sem er fylg­is­aukn­ing upp á 3,4 pró­sentu­stig frá því í febr­ú­ar. 

Þá bætir Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn við sig 0,3 pró­sentu­stigum og mælist með 17,2 pró­sent fylgi og Mið­flokk­ur­inn fer úr 3,9 í 4,3 pró­sent, sem myndi senni­leg­ast ekki nægja honum til að ná inn mann­i. 

Aðrir flokkar dala milli mán­aða. Mest hrynur af fylgi Vinstri grænna, flokks Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, en það lækkar um 3,6 pró­sentu­stig niður í 9,3 pró­sent. Það þýðir að Vinstri græn hafa tapað um 28 pró­sent af fylgi sínu á einum mán­uði og flokk­ur­inn mælist sem stendur fimmti stærsti flokkur lands­ins. Sam­fylk­ingin fer úr 13,4 í 12,1 pró­sent og tapar 1,3 pró­sentu­stigi milli kann­ana.

Auglýsing
Viðreisn dalar líka milli mán­aða, alls um 1,2 pró­sentu­stig, niður í 8,5 pró­sent. Flokkur fólks­ins yrði minnsti flokk­ur­inn á þingi ef kosið yrði í dag, og nið­ur­stöð­urnar yrðu í takt við könnun Mask­ínu, með 7,1 pró­sent fylgi sem er aðeins minna en flokk­ur­inn mæld­ist með í febr­ú­ar. Sós­í­alista­flokk­ur­inn stendur svo nán­ast í stað og mælist með 3,4 pró­sent fylgi en var með 3,5 pró­sent fyrir mán­uði síð­an.

Sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokka eykst

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír voru með 51,7 pró­sent sam­an­lagt fylgi í febr­úar en fengu 54,3 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra­haust. Nú mælist fylgið hins vegar 51 pró­sent og lækkar því milli mán­aða.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist yfir kjör­fylgi, en ein­ungis um 0,1 pró­sentu­stig. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 0,1 pró­sentu­stigi minna fylgi en hann fékk í kosn­inga­sigri sínum í haust en Vinstri græn mæl­ast 3,3 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fimm mæl­ast með 45,7 pró­sent fylgi. Píratar hafa bætt mest við sig það sem af er kjör­tíma­bili eða 5,1 pró­sentu­stigi. Það þýðir að fylgi Pírata mælist nú 59 pró­sent meira en það var þegar síð­ast var kos­ið. 

Þrír stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir sam­kvæmt könnun Mask­ínu: Pírat­ar, Sam­fylk­ing og Við­reisn, mæl­ast sam­an­lagt með 34,3 pró­sent fylgi en fengu 26,8 pró­sent í kosn­ing­unum í sept­em­ber. Þeir hafa því bætt við sig 28 pró­sent fylgi á rúmum fimm mán­uð­um.

Auglýsing

Píratar stórir í Reykja­vík

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram í maí næst­kom­andi. Í könnun Mask­ínu er fylgi flokka brotið niður eftir búsetu. Þar kemur fram að Í höf­uð­borg­inni Reykja­vík, þar sem stefnir í harða bar­áttu um borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluta, mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur með 20,6 pró­sent fylgi. Píratar mæl­ast hins vegar nán­ast jafn stór­ir, en 19,9 pró­sent borg­ar­búa segj­ast styðja þá. Sam­fylk­ingin nýtur stuðn­ings 17,5 pró­sent íbúa Reykja­vík­ur, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 10,4 pró­sent, Vinstri græn 9,3 pró­sent og Við­reisn 8,9 pró­sent. Þá segj­ast 4,5 pró­sent borg­ar­búa að þeir myndu kjósa Sós­í­alista­flokk­inn ef kosið yrði til þings í dag en 3,1 pró­sent Mið­flokk­inn. 

Vert er að taka fram að könnun Mask­ínu var um afstöðu fólks til fram­boðs stjórn­mála­flokka til Alþing­is, ekki borg­ar­stjórn­ar.

Könn­unin fór fram dag­ana 17. febr­úar ti l9. mars 2022 og voru 2.333 svar­endur sem tóku afstöðu til flokks.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent