Sjálfstæðisflokkurinn ætlar í leiðtogaprófkjör í borginni

Ákveðið var í kvöld að viðhafa sama fyrirkomulag við val á oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og var fyrir kosningarnar 2018. Kosið verður um leiðtoga flokksins í borginni. Tveir borgarfulltrúar hafa þegar tilkynnt framboð.

Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir hafa þegar tilkynnt að þau sækist eftir oddvitasætinu.
Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir hafa þegar tilkynnt að þau sækist eftir oddvitasætinu.
Auglýsing

Kosið verður um leið­toga lista Sjálf­stæð­is­manna fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Reykja­vík að óbreyttu. Það er sama leið og flokk­ur­inn fór fyrir kosn­ing­arnar 2018 þegar Eyþór Arn­alds var val­inn til að leiða lista flokks­ins. Þetta var ákveðið á fundi Varð­ar, full­­trúa­ráðs sjálf­­stæð­is­­fé­laga í Reykja­vík, í kvöld. 

Full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins þarf að sam­þykkja leið­ina til að hún verði að veru­leika með 2/3 hluta atkvæða. Gangi það eftir verður kosið í kjör­nefnd til að fylla önnur sæti á list­an­um.

Eyþór hefur gefið það út að hann stefni að end­ur­kjöri að óbreyttu og Hildur Björns­dótt­ir, sem var í öðru sæti á lista flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ing­ar, hefur þegar til­kynnt að hún skori hann á hólm. Eng­inn annar hefur sem stendur til­kynnt fram­boð í leið­toga­sæt­ið.

Auglýsing
Ef sama aðferð verður notuð til að manna önnur sæti á list­anum og í fyrir síð­ustu kosn­ingar mun kjör­nefnd svo raða í önnur sæti að loknu leið­toga­kjöri og full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan taka afstöðu til þeirrar til­lögu.

Árið 2018 sótt­u­st, ásamt Eyþóri þau Kjartan Magn­ús­son og Áslaug Frið­­riks­dótt­ir, þáver­andi borg­­ar­­full­­trú­ar, Vil­hjálmur Bjarna­­son fyrr­ver­andi Alþing­is­­maður og Viðar Guðjohn­sen leig­u­­sali eftir því að leiða list­ann. 

Eng­inn þeirra sem lutu í lægra haldi fyrir Eyþóri fékk sæti á lista flokks­ins í kjöl­farið og eini sitj­andi borg­ar­full­trú­inn sem sat í efstu sæt­unum var Marta Guð­jóns­dótt­ir.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 30,8 pró­sent atkvæða í þeim kosn­ingum og átta borg­ar­full­trúa kjörna. Fyrir vikið varð hann stærsti flokk­ur­inn í borg­inni á ný. Það dugði þó ekki til þar sem Sam­fylk­ing­in, Við­reisn, Píratar og Vinstri græn mynd­uðu meiri­hluta og Dagur B. Egg­erts­son hélt áfram sem borg­ar­stjóri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent