Sjálfstæðisflokkurinn í fyrsta sinn undir 20 prósent í þjóðarpúlsi Gallup

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 19,8 prósenta fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallup og hefur aldrei farið lægra. Fyrri versta niðurstaða flokksins var í miðjum stormi bankahrunsins árið 2008, en þá mældist fylgið 20,6 prósent.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 19,8 pró­senta fylgi í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup fyrir apr­íl­mán­uð, en þetta er lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með í könnun fyr­ir­tæk­is­ins.

Áður hafði flokk­ur­inn farið lægst í 20,6 pró­sent í könn­unum Gallup, en það var í nóv­em­ber 2008. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent atkvæða í síð­ustu alþing­is­kosn­ing­um.

Mynd: Gallup

Þrátt fyrir að hafa aldrei mælst minni er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þó með mest fylgi allra flokka í þess­ari nýju könn­un. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er næst stærstur og mælist með 15,6 pró­senta fylgi, sem er tæpum tveimur pró­sentu­stigum frá kjör­fylgi flokks­ins.

Píratar mæl­ast þriðji stærsti flokk­ur­inn með 14,5 pró­sent fylgi og Sam­fylk­ingin kemur í kjöl­farið með 13,7 pró­sent fylgi. Píratar fengu 8,6 pró­sent atkvæða og Sam­fylk­ingin 9,9 pró­sent í kosn­ing­unum síð­asta haust.

Auglýsing

Vinstri græn mæl­ast með 10,1 pró­sent fylgi hjá Gallup, sem er 2,5 pró­sentu­stigum minna en kjör­fylgi flokks­ins í síð­ustu kosn­ing­um. Næst kemur Við­reisn með 9,6 pró­sent fylgi, en flokk­ur­inn fékk 8,3 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ing­um. Flokkur fólks­ins mælist með 7,7 pró­sent, rúmu pró­senti undir kjör­fylgi. Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með 4,6 pró­senta fylgi og Mið­flokk­ur­inn með 4,1 pró­sent.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina ekki minni síðan 2020

Stuðn­ing­ur­inn við rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna hrapar um heil 14 pró­sentu­stig á milli mán­aða í þess­ari könnun og segj­ast nú 47,4 pró­sent styðja rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, sam­an­borið við 60,9 pró­sent aðspurðra í mars­mán­uði.

Ekki hafa færri sagst styðja rík­is­stjórn­ina frá því í jan­úar árið 2020, en þá mæld­ist stuðn­ing­ur­inn við stjórn­ina 46,5 pró­sent. Síðan bar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn dyra og stuðn­ingur við stjórn­völd stórjókst og hefur verið um og yfir 60 pró­sentum und­an­farin tvö ár – allt þar til nú.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent