Skipar starfshóp sem á að vinna grænbók um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum

Í nýjum starfshóp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sitja þau Vilhjálmur Egilsson, Ari Trausti Guðmundsson og Sigríður Mogensen.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herra hefur skipað starfs­hóp sem hefur það hlut­verk að vinna skýrslu, svo nefnda græn­bók, um stöðu og áskor­anir Íslands í orku­málum með vísan til áherslna og mark­miða stjórn­valda í lofts­lags­mál­um.

Þetta kemur fram í vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Starfs­hóp­inn skipa Vil­hjálmur Egils­son hag­fræð­ing­ur, sem er for­mað­ur, Ari Trausti Guð­munds­son jarð­eðl­is­fræð­ingur og Sig­ríður Mog­en­sen sviðs­stjóri hjá Sam­tökum iðn­að­ar­ins. Erla Sig­ríður Gests­dóttir og Magnús Dige Bald­urs­son frá umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­inu munu starfa með starfs­hópn­um.

Auglýsing

„Skýrsl­unni er ætlað að draga fram stað­reyndir um stöðu mála á grund­velli fag­legra sjón­ar­miða og upp­lýs­inga um lyk­il­þætti á sviði orku­mála og setja fram á aðgengi­legu formi til upp­lýs­inga fyrir stjórn­völd, hag­að­ila og almenn­ing.

Starfs­hópnum er með vinnu sinni meðal ann­ars falið að gera grein fyrir orku­þörf, stöðu á flutn­ings­kerfi raf­orku og orku­mark­aði á Íslandi með til­liti til lofts­lags­mark­miða stjórn­valda með orku­skipt­um. Þá hefur starfs­hóp­ur­inn það hlut­verk að gera grein fyrir núver­andi stöðu mála varð­andi fram­boð og eft­ir­spurn raf­orku,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Mik­il­vægt að fá yfir­sýn og tölu­legar upp­lýs­ingar um stöðu mála“

Fram kemur hjá ráðu­neyt­inu að starfs­hóp­ur­inn muni hafa reglu­bundið sam­ráð við lyk­il­að­ila, sem séu Land­vernd, Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands, Sam­orka, Skipu­lags­stofn­un, Orkuklas­inn og Græn­vang­ur. Þá muni hóp­ur­inn einnig við­hafa reglu­bundið sam­ráð við sér­stakan sam­ráðs­hóp sem skip­aður sé full­trúum ráðu­neyt­is­ins, for­stöðu­mönnum við­kom­andi stofn­anna og for­manni verk­efna­stjórnar ramma­á­ætl­un­ar.

„Við stöndum frammi fyrir miklum áskor­unum sem varða meðal ann­ars orku­skiptin og hvernig við náum metn­að­ar­fullum mark­miðum stjórn­valda í lofts­lags­mál­um. Það er afar mik­il­vægt að fá yfir­sýn og tölu­legar upp­lýs­ingar um stöðu mála, meðal ann­ars orku­þörf­ina, hvernig hægt er að nýta flutn­ings­kerfi okkar með sem bestum hætti og hvar úrbóta er þörf. Græn­bókin sem starfs­hópnum hefur verið falið að vinna er mik­il­vægur grunnur til að byggja á frek­ari ákvarð­anir og aðgerðir til að ná þessum mark­mið­u­m,“ segir Guð­laugur Þór í til­kynn­ing­unni.

Starfs­hóp­ur­inn á að skila skýrslu sinni og til­lögum til ráð­herra fyrir 1. mars.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent