Slakað á sóttkvínni

Ríkisstjórnin hefur tekið ákvörðun um að slaka á reglum um sóttkví. Hvernig nákvæmlega útfærslan verður hefur þó ekki verið kynnt, en til stendur að beita hraðprófum í auknum mæli til að greina þá sem verið hafa í takmörkuðum tengslum við smitaða.

Yfir 2.500 manns eru í sóttkví á Íslandi í dag og skólar að hefjast um allt land.
Yfir 2.500 manns eru í sóttkví á Íslandi í dag og skólar að hefjast um allt land.
Auglýsing

Rík­is­stjórnin hefur tekið ákvörðun um að slakað verði á þeim reglum sem nú gilda varð­andi sótt­kví þeirra sem verða útsettir fyrir COVID-19 smiti. Tölu­vert ákall hefur verið um að regl­urnar verði teknar til end­ur­skoð­unar nú þegar skólar eru að hefj­ast og útlit er fyrir að mörg þús­und ein­stak­lingar verði í sótt­kví á sama tíma, með til­heyr­andi raski á þjóð­líf­inu.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum á töl­fræði­vef yfir­valda eru í dag 2.529 manns í sótt­kví, til við­bótar við þá 1.137 sem eru í ein­angrun vegna stað­fests smits af kór­ónu­veirunni. Það er um 1 pró­sent þjóð­ar­inn­ar.

Í máli ráð­herra eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag kom fram að til standi að breyta regl­un­um, með það að mark­miði að draga úr fjölda þeirra sem þurfa að fara í sótt­kví vegna hvers ein­stak­lings sem smit­ast.

Svan­dís Svav­ars­dóttir sagði við Rík­is­út­varpið að fólki sem væri í „beinni snert­ingu“ við þann smit­aða yrði beint í sótt­kví, en hrað­próf kæmu til sög­unnar fyrir þá sem stæðu þeim smit­aða fjær og hefðu verið í minni tengslum við hann.

Einnig hefði verið tekin ákvörðun um að fjöl­skyldur barna sem skikkuð væru í sótt­kví þyrftu ekki að fara sjálfar í sótt­kví með barn­inu.

Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði, sömu­leiðis við RÚV, að hrað­próf gætu hjálpað til við að draga úr sótt­kví­ar­kröf­um, sem reynst hefðu mjög íþyngj­andi. Á rík­is­stjórn­ar­fundi morg­uns­ins fóru heil­brigð­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra sam­eig­in­lega yfir fýsi­leika þess að nota hrað­próf og sjálfs­próf við grein­ingar vegna COVID-19.

„Þegar allar deildir á leik­skóla og allir for­eldra allra barna eru komnir í sótt­kví út af smiti á einni deild, þetta finnst mér allt of langt geng­ið,“ sagði Bjarni.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við Vísi eftir fund­inn að Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir væri að leggja loka­hönd á til­lögur sínar um sótt­kvína, sem von­andi yrðu kynntar með ítar­legri hætti síðar í dag.

Stjórn­völd geti ekki lagt línur til langs tíma

Ráð­herrar voru spurðir út í þá fram­tíð­ar­sýn sem sótt­varn­ar­læknir lagði fram til heil­brigð­is­ráð­herra þann 11. ágúst eftir fund­inn, en engar ákvarð­anir hafa verið teknar á grund­velli þeirra ráð­legg­inga. For­sæt­is­ráð­herra sagði að Þórólfur væri að horfa til tölu­verðs langs tíma og stjórn­völd gætu ekki lagt lín­urnar langt inn í fram­tíð­ina í þessum efn­um.

Svan­dís Svav­ars­dóttir tók í sama streng í sam­tali við RÚV. „Við getum ekki tekið ákvörðun um það nákvæm­lega hvernig hlut­irnir verða eftir 6 mán­uði eða ár en við getum sagt að við viljum draga úr tak­mörk­unum eins og nokkur er kost­ur, þó án þess að það setji heil­brigð­is­kerfið okkar á hlið­ina.“

Hún sagði stjórn­völd vera í miðri umræðu um fram­haldið og einnig þyrfti að taka afstöðu til þess hvað ætti að gera núver­andi reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir og hin ýmsu boð og bönn sem eru í gildi rennur út, en það er þann 27. ágúst næst­kom­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent