Snapchat komið með viðskiptamódel - byrja að birta auglýsingar

wpid.snapchat.jpg
Auglýsing

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Snapchat, sem býður upp á sjálfseyð­andi örmynd­skila­boð, hefur til­kynnt not­endum sín­um í Banda­ríkj­un­um, að þeir megi eiga von á því að fara að sjá fleiri aug­lýs­ingar í "recent updates" hluta for­rits­ins á næst­unni. Snapchat birti einmitt fyrstu aug­lýs­ing­una í for­rit­inu um helg­ina. "Þetta verður skrítin til­finn­ing til að byrja með, en við höfum ákveðið að stíga þetta skref" segir Snapchat í blogg­færslu, þar sem fyr­ir­tækið útskýrir af hverju það hefur látið undan mark­aðs­öfl­un­um. Vef­mið­ill­inn Quartz segir frá mál­inu.

Í áður­nefndri blogg­færslu Snapchat seg­ir: "Bestu aug­lýs­ing­arnar segja þér eitt­hvað meira um hluti sem þú hefur áhuga á. Sum fyr­ir­tæki eyða miklum tíma í að safna upp­lýs­ingum um not­endur sína, til að kom­ast að áhuga­málum þeirra. Þessi vara sem við erum að láta frá okkur er mikið ein­fald­ari. Aug­lýs­ing mun af og til birt­ast í "Recent Updates" hlut­anum þín­um, og þú ræður hvort þú horfir á hana eða ekki. Ekk­ert stór­mál, hún fer þegar þú ert búinn að horfa á hana, eða eftir 24 klukku­stund­ir, eins í My Story."

Auglýsing


Snapchat ætlar ekki að birta aug­lýs­ingar í per­sónu­lega sam­skipta­hlut­an­um, þar sem fólk skipt­ist á "snöpp­um," eða spjall­ar. "Það væri bara dóna­leg­t," eins og fyr­ir­tækið orðar það í blogg­færsl­unni fyrr­greindu.



Loks segir í færsl­unni: "Skilj­an­lega, vill fólk vita af hverju við erum að kynna aug­lýs­ingar til leiks í þjón­ustu okk­ar. Svarið kemur vafa­laust fáum á óvart: við þurfum að græða ­pen­ing." Í blogg­færsl­unni lofar sam­fé­lags­mið­ill­inn að nota pen­ing­anna sem það þénar til að kynna nýjar vörur fyrir not­endum sín­um.



Um hund­rað millj­ónir ein­stak­linga hafa nið­ur­halað Snapchat - smá­forrit­inu á heims­vísu frá því að því var hleypt af stokk­unum fyrir tveimur árum, en um 70 pró­sent þeirra eru kon­ur. Not­end­urnir senda um 400 milljón "snaptjött" á milli sín dag­lega, en um 71 pró­sent not­enda Snapchat eru undir 25 ára.

Eig­endur Snapchat höfn­uðu kauptil­boði Face­book í snjall­for­ritið í lok síð­asta árs, sem hljóð­aði upp á þrjá millj­arða Banda­ríkja­dala.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None