Sósíalistar vilja stórauka skattheimtu á eignir, arf og fjármagnstekjur

Nýjar efnahagstillögur Sósíalistaflokksins fela í sér aukna skattheimtu á tekju- og eignamiklum einstaklingum, að eigin sögn til að „endurheimta það sem auðugasta fólkið náði úr sameiginlegum sjóðum á nýfrjálshyggjuárunum.“

Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokksins
Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokksins
Auglýsing

Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur birt nýjar efna­hags­til­lögur sem fela í sér allt að 9 pró­senta auð­legð­ar­skatt og allt að tvö­földun fjár­magnstekju­skatts og marg­földun erfða­fjár­skatts. Enn fremur leggur flokk­ur­inn til að skatt­heimta allra þriggja skatt­anna verði þrepa­skipt.

Sam­kvæmt frétt sem birt­ist sam­hliða til­lög­unum hefur nið­ur­brot skatt­kerf­is­ins á nýfrjáls­hyggju­ár­unum flutt „stór­kost­lega fjár­muni“ úr almanna­sjóðum yfir til auð­fólks og aukið skatt­byrði meg­in­þorra almenn­ings.

Flokk­ur­inn segir stig­hækk­andi skatta vera tæki til að vinna gegn kap­ít­al­ísku hag­kerfi, sem flytji linnu­laust fé frá þeim sem lítið eða ekk­ert eiga til þeirra sem eiga mikið og vilja eign­ast meira.

Auglýsing

9 pró­senta auð­legð­ar­skattur

Á meðal til­lagna sós­í­alista­flokks­ins er þrepa­skiptur auð­legð­ar­skatt­ur, frá 2 pró­sentum á hreina eign umfram 200 millj­ónir króna hjá hjónum upp í 9 pró­sent hjá hjónum sem eiga meira en 10 millj­arða króna. Flokk­ur­inn telur að innan við 1 pró­sent lands­manna muni þurfa að greiða þennan skatt, þar sem eig­in­fjár­staða þeirra sé ekki nógu há.

Fjár­magnstekjur rúm­lega tvö­fald­ast

Einnig leggur flokk­ur­inn til að fjár­magnstekju­skattur ein­stak­linga verði skatt­lagður með sama hætti og launa­skatt­ur. Þar sem jað­ar­skattur fjár­magnstekna er 22 pró­sent, en jað­ar­skattur launa­tekna er 46,25 pró­sent myndi slík breyt­ing fela í sér meira en tvö­földun fjár­magnstekju­skatts. Enn fremur telja sós­í­alistar að skatt­stig­inn á fjár­magnstekjum eigi að vera þrepa­skiptur og bratt­ur.

Erfða­fjár­skattur þrepa­skiptur

Sós­í­alista­flokk­ur­inn vill líka auka erfða­fjár­skatt, sem er nú í 10 pró­sent­um. Sam­kvæmt flokknum er erða­fjár­skattur í grunn­inn tekju­skattur og ætti því að vera þrepa­skiptur og skatt­lagður með sama hætti og aðrar tekj­ur. Skatt­leys­is­mörk ættu hins vegar að mið­ast við „gott íbúða­verð“ og vera óbreyttur eða lægri fyrir fólk sem erfir allt að 75 millj­ónir króna.

„Tæki til að inn­leiða meiri kær­leika“

„Til­gangur þessa er ekki aðeins tekju­öflun fyrir rík­is­sjóð og sveita­sjóði heldur að auka rétt­læti og vald­dreif­ingu innan sam­fé­lags­ins,“ stendur í yfir­lýs­ingu Sós­í­alista­flokks­ins. „Óheftur kap­ít­al­ismi sem skatt­kerfið vegur ekki á móti býr til alræði auð­valds­ins, sam­fé­lag órétt­lætis og grimmd­ar. Skatt­kerfið er því tæki til að inn­leiða meiri kær­leika, sátt og rétt­læt­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent