Spá stökkbreyttu orkulandslagi á allra næstu árum

Innrás Rússa í Úkraínu og áhyggjur af orkuskorti hafa orðið til þess að fjölmörg ríki eru að taka risastór stökk í þá átt að virkja endurnýjanlega orkugjafa á borð við sólar- og vindorku.

Vindorkuver á landi eru í augnablikinu ódýrari valkostur en slík ver á hafi úti. Þó eru stórtæk áform um vindorkuver í hafi í pípunum víða um heim.
Vindorkuver á landi eru í augnablikinu ódýrari valkostur en slík ver á hafi úti. Þó eru stórtæk áform um vindorkuver í hafi í pípunum víða um heim.
Auglýsing

Alþjóða orku­stofn­unin (IEA) spáir því að orka frá end­ur­nýj­an­legum orku­gjöf­um, aðal­lega sól­ar- og vind­orku, komi til með að að aukast um 75 pró­sent á næstu fimm árum. Áhyggjur af orku­skorti eru ein helsta ástæðan fyrir þessu risa stökki.

Þessar áhyggjur eru til­komnar vegna inn­rásar Rússa í Úkra­ínu og hafa orðið til þess að mörg ríki, m.a. í Evr­ópu, hafa ákveðið að flýta orku­skiptum sín­um, þ.e. umskiptum úr jarð­efna­elds­neyti í orku­gjafa sem flokk­aðir eru sem end­ur­nýj­an­leg­ir.

Auglýsing

Í nýrri spá stofn­un­ar­innar verður áherslan á end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa mjög fyr­ir­ferð­ar­mikil á næstu miss­er­um. Þannig spáir stofn­unin því að 90 pró­sent af allri nýrri orku­vinnslu til raf­orku­fram­leiðslu verði frá end­ur­nýj­an­legum orku­auð­lindum á næstu fimm árum. Árið 2025 verði slíkir orku­gjafar not­aðir hlut­falls­lega meira til raf­orku­fram­leiðslu en kol.

IEA á von á því að orku­vinnsla með end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum eigi eftir að aukast um 2.400 gíga­vött á heims­vísu á næstu fimm árum, sem jafn­ast á við alla orku­fram­leiðslu Kína í dag. Þetta er 30 pró­sent meiri vinnsla en spá sem gerð var fyrir ári síðan reikn­aði með.

Faith Birol, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða orku­stofn­un­ar­inn­ar, segir að vinnsla end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa hafi verið á góðri sigl­ingu fyrir stríðið í Úkra­ínu en eftir að orku­krísa skap­að­ist hafi áformin sprungið út enda vilja ríki tryggja orku­ör­yggi sitt sem aldrei fyrr. „Heims­byggðin mun afla meiri end­ur­nýj­an­legrar orku á næstu fimm árum en á síð­ustu tutt­ugu árum,“ er haft eftir henni í til­kynn­ingu frá IEA. Hún segir yfir­stand­andi orku­krísu marka sögu­legan við­snún­ing í átt að hreinni og örugg­ari orku­kerf­um.

Evr­ópu­ríki hafa til þessa verið mjög háð gasi frá Rúss­landi líkt og ber­lega kom í ljós með inn­rás Rússa í Úkra­ínu. Stjórn­völd í álf­unni kepp­ast nú við að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja orku­fram­tíð án þess að þurfa að stóla á rúss­neska gas­ið.

Í Banda­ríkj­un­um, Kína og á Ind­landi er einnig verið að móta stefnu og gera breyt­ingar á raf­orku­mörk­uðum til að ýta undir hrað­ari þróun end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa. Í skýrslu IEA segir að um helm­ingur nýrrar orku­vinnslu úr end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum í heim­inum muni á næstu fimm árum verða í Kína.

Með öllum þessum fyr­ir­ætl­unum er að sögn IEA lík­legra að mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins í lofts­lags­málum náist, þ.e. að halda hlýnun jarðar innan við 1,5 gráðu frá því sem var við upp­haf iðn­væð­ing­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent