Spáð 2,6 prósenta hagvexti í ár

Gera má ráð fyrir að hagkerfið vaxi um 2,6 prósent í ár, samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstofu. Búist er við meira atvinnuleysi og hærri verðbólgu í ár heldur en í fyrra.

fólk
Auglýsing

Hag­stofa reiknar með 2,6 pró­senta hag­vexti í ár og 4,8 pró­senta hag­vexti á næsta ári. Hins vegar er spáð 7,8 pró­senta atvinnu­leysi og 3,2 pró­senta verð­bólgu að með­al­tali í ár, sem er meira en í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtri þjóð­hags­spá Hag­stofu fyrir árin 2021-2024.

Gangi þjóð­hags­spáin eftir verður hag­kerfið orðið næstum því jafn­stórt í árs­byrjun 2023 og það var í byrjun síð­asta árs. Í ár ætti aukin einka­neysla og meiri fjár­fest­ing að leiða hag­vöxt­inn, en búist er við að fram­lag útflutn­ings til hag­vaxtar verði mest á næsta ári.

Hag­vaxt­ar­spá Hag­stofu fyrir þetta ár er svipuð þeirri sem Seðla­bank­inn gerði í nóv­em­ber á síð­asta ári, en þar spáði hann 2,3 pró­senta vexti. Íslands­banki var þó nokkuð bjart­sýnni í þjóð­hags­spá sinni í jan­ú­ar, en þar bjóst hann við að hag­kerfið myndi vaxta um 3,2 pró­sent.

Auglýsing

Fjár­fest­ing fyrst, svo ferða­þjón­ustan

Sam­kvæmt Hag­stofu mun atvinnu­leysi ná hámarki í ár og fara svo minnk­andi með bata í ferða­þjón­ustu á spá­tím­an­um. Ekki er búist við fullum bata í grein­inni í ár, en þó er gert ráð fyrir rúm­lega 10 pró­senta vexti í útflutn­ingi, miðað við síð­asta ár. Á næsta ári er svo búist við 16,8 pró­senta vexti í útflutn­ingi.

Hag­stofan gerir ráð fyrir 18 pró­senta vexti í fjár­fest­ingum hins opin­bera í ár, en hún dróst saman um rúm 7 pró­sent í fyrra. Einnig er talið að atvinnu­vega­fjár­fest­ing taki við sér á spá­tím­anum og auk­ist um 6,9 pró­sent í ár og 7,8 pró­sent á næsta ári. Þar ætti sögu­lega lágur fjár­magns­kostn­aður í formi lágra vaxta að styðja við þessa þró­un.

Minni íbúða­fjár­fest­ing og meiri verð­bólga

Hins vegar er búist við áfram­hald­andi sam­drætti í íbúða­fjár­fest­ingu og gert ráð fyrir að hún verði 6,7 pró­sentum minni í ár. Sam­kvæmt Hag­stofu leiddi sam­dráttur í þess­ari teg­und fjár­fest­ingar í fyrra, sam­hliða auk­inni eft­ir­spurn, til hærra íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Einnig telur Hag­stofan að verð­bólga verði meiri í ár heldur en í fyrra. Reiknað er með að hún nái 3,2 pró­sentum að með­al­tali í ár, en haldi sér svo í 2,5 pró­senta verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans næstu árin. Til sam­an­burðar var verð­bólgan að með­al­tali 2,8 pró­sent í fyrra.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent