Spotify ætlar í samkeppni við Youtube og Facebook á netmyndbandamarkaði

spotify_vef.jpg
Auglýsing

Tón­list­ar­veitan Spotify er að und­ir­búa inn­reið á net­mynd­banda­mark­að­inn, sam­kvæmt frétt Wall Street Journal. Þar ætlar sænska fyr­ir­tækið að takast á við risa á borð við Youtube og Face­book.

Í frétt blaðs­ins segir að Spotify hafi átt í við­ræðum við þónokkra stóra aðila innan staf­ræna fjöl­miðla­heims­ins um mögu­legt sam­starf. Á meðal þeirra eru fyr­ir­tæki sem sér­hæfa sig í að búa til og dreifa efni á Youtu­be. Hug­myndin er þá að efni þeirra fari frekar á nýjan vett­vang Spotify auk þess sem fyr­ir­tækin myndu fram­leiða nýtt efni sér­stak­lega í sam­starfi við Spoti­fy. Þá hafa við­ræður einnig átt sér stað við hefð­bundn­ari fjöl­miðla­fyr­ir­tæki.

Á meðal fyr­ir­tækja sem Spotify hefur átt í við­ræðum við eru Time Inc., Tastema­de, Maker Studio og Fullscreen. Búist er við því að Spotify kynni mögu­lega þessa breyt­ingu í þessum mán­uði. Þegar hefur verið boðað til kynn­ingar á vegum sænska fyr­ir­tæk­is­ins þann 20. maí næst­kom­andi en engar upp­lýs­ingar hafa verið gefnar um hvað standi til að kynna.

Auglýsing

Mikið tap á rekstri Spotify



Þótt vöxtur Spotify hafi verið gríð­ar­legur und­an­farin ár, og lík­ast til hafa fá ef nokkur fyr­ir­tæki hrist jafn ræki­lega upp í tón­list­ar­geir­anum með jafn afger­andi hætti og það und­an­farin ár, hefur fyr­ir­tækið aldrei skilað hagn­aði.

Í fyrra námu tekjur Spotify 172 millj­örðum króna, en samt tap­aði fyr­ir­tækið 26 millj­örðum króna á árinu. Það var meira tap en árið 2013 þegar tapið nam um níu millj­örðum króna.

Alls eru not­endur Spotify um 60 millj­ónir alls, en greið­andi áskrif­endur eru um 15 millj­ón­ir. Stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins segja að tapið skýrist fyrst og fremst að kostn­aði vegna vöru­þró­un­ar, aukn­ingu á þjón­ustu og ýmis konar leyf­is­mál­um.

Þessi staða, að Spotify sé enn að tapa stórum fjár­hæð­um, gæti skýrt að hluta áform fyr­ir­tæk­is­ins um að fara inn á net­mynd­bands­mark­að­inn. Í gegnum hann getur fyr­ir­tækið nefni­lega haft miklar aug­lýs­inga­tekj­ur.

Það er þó ekki auð­velt að ná fót­festu á net­mynd­banda­mark­að­in­um. Youtube trónir þar yfir öðrum og tekur 45 pró­sent af öllum aug­lýs­inga­tekjum mynd­banda sem sýnd eru á veit­unni. Alls námu tekjur Youtu­be, sem er í eigu Goog­le, um 528 millj­örðum króna í fyrra. Samt skil­aði fyr­ir­tækið rétt svo hagn­aði. Face­book hefur einnig verið að færa sig mjög upp á skaftið á net­mynd­banda­mark­að­in­um. Það eru því engir smá fiskar sem Spotify ætlar að fara að slást við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None