Starfsemi Alvogen í Asíu seld fyrir tugi milljarða – Sjóður Wessman kaupir og selur

CVC Capital Partners og Temasek hafa selt hluti í lyfjafyrirtækjum í Asíu sem Alvogen á. Dótturfélag stærstu skráðu fyrirtækjasamstæðu Taílands er kaupandinn ásamt fjárfestingastjóði sem stýrt er af Róberti Wessman.

Við undirskriftina í nótt.
Við undirskriftina í nótt.
Auglýsing

Azt­iq, sjóður sem stýrt er af Róberti Wess­man, og Inn­obic Asia, dótt­ur­fé­lag PTT Public Company Limited, stærstu skráðu fyr­ir­tækja­sam­stæðu Taílands, hafa keypt leið­andi hlut í lyfja­fyr­ir­tæk­inu Lotus Pharmaceut­ical og allt hlutafé í Adalvo á alls 475 millj­ónir dala, eða rúm­lega 62 millj­arða króna af eig­endum Alvogen-­sam­stæð­unn­ar, en um er að ræða starf­semi hennar í Asíu. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans skipt­ast kaupin þannig að Inn­obic kaupir um tvo þriðju þess sem selt var og Aztiq um þriðj­ung. 

Selj­endur eru CVC Capi­tal Partners, Tema­sek Hold­ings í Singa­pore ásamt Azt­iq, sem er þar af leið­andi bæði kaup­andi og selj­andi.

Við­skiptafléttan er nokkuð flók­in. Hún fer þannig fram að félag sem kall­ast Aztiq III HoldCo, í eigu Aztiq og Inn­obic, kaupir allt hlutafé í Alvogen Emerg­ing Markets Hold­ing Limited af Alvogen Lux Hold­ing Sarl, en fyrr­nefndar félagið er fyrir vikið á leið­andi hlut í lyfja­fyr­ir­tækj­unum Lotus Pharmaceut­ical og á Adalvo að fullu. 

Auglýsing
Í til­kynn­ingu segir að Aztiq muni ann­ast rekstur Aztiq II HoldCo næstu þrjú árin. Það þýðir að Róbert Wessman og sam­starfs­menn hans hafa skuld­bundið sig til að starfa áfram í þann tíma og Róbert verður áfram stjórn­ar­for­maður Lotus, en eftir það geti orðið breyt­ingar á stjórn­enda­hópn­um. Sú ákvörðun hvílir hjá Inn­obic sem er stærsti hlut­haf­inn.

Kaupin hafa ekki áhrif á Alvot­ech, sem ætlar sér að setja á markað sam­heita­lyf í nán­ustu fram­tíð og hefur byggt lyfja­verk­smiðju í Vatns­­­mýr­inni, né starf­semi Alvogen í Banda­ríkj­un­um. 

Stærsti hlut­haf­inn í Alvot­ech er Azt­iq. Í fyr­ir­tækja­­­skrá er Róbert skráður óbeinn end­an­­­legur eig­andi að 38,6 pró­­­sent hlut í Alvot­ech, sem gefur til kynna að það sé eign­­­ar­hlut­­­ur­inn sem hann stýr­­­ir. Næst stærsti hlut­haf­inn er svo Alvogen, sem Aztiq Pharma á beint og óbeint um 40 pró­sent hlut í. CVC Capi­tal og Tema­sek eru hinir hlut­haf­arn­ir.

Í frétta­til­kynn­ingu er haft eftir Tomas Ekman, stjórn­ar­manni Alvogen Lux, að komið sé að þeim tíma­mótum að selja hlut og láta Aztiq og Inn­obic halda áfram þeirri veg­ferð sem Lotus er á. Bæði Adalvo og Lotus munu halda áfram nánu sam­starfi við Alvogen fyr­ir­tækja­sam­stæð­urn­ar. Salan í dag á Adalvo og Lotus eru í sam­ræmi við þá lang­tíma stefnu sem var mótuð á sínum tíma og mun Alvogen ráð­stafa sölu­and­virð­inu með það í huga að hák­marka arð­semi hluta­hafa Alvogen.“

Róbert Wessman þakkar á sama stað frá­far­andi hlut­höfum fyrir stuðn­ing­inn og sam­starfið und­an­farin ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent