Stefnt að því að Logi leysi Helgu Völu af hólmi sem þingflokksformaður

Stefnt er að því að fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar taki við hlutverki þingflokksformanns flokksins, samkvæmt heimildum Kjarnans. Helga Vala Helgadóttir hefur gegnt því hlutverki í um það bil eitt ár.

Stefnt er að því að Logi Einarsson taki við sem þingflokksformaður Samfylkingar, samkvæmt heimildum Kjarnans.
Stefnt er að því að Logi Einarsson taki við sem þingflokksformaður Samfylkingar, samkvæmt heimildum Kjarnans.
Auglýsing

Stefnt er að því að Logi Ein­ars­son verði næsti þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Í hádeg­inu sagði RÚV frá því að Kristrún Frosta­dótt­ir, nýr for­maður Sam­fylk­ing­ar, ætl­aði að skipta Helgu Völu Helga­dóttur út sem þing­flokks­for­manni. Helga Vala vís­aði fyr­ir­spurn RÚV um þetta efni áfram til Kristrún­ar, sem hvorki ját­aði því né neit­aði að til stæði að skipta um þing­flokks­for­mann.

Auglýsing

Í sam­tali við RÚV sagði Kristrún að þing­flokks­fundur hefði ekki enn verið hald­inn frá því að Sam­fylk­ingin lauk sínum lands­fundi og þing­flokks­fund­ur, þar sem ákvarð­anir af þessu tagi eru tekn­ar, hefði því ekki enn farið fram.

Þar sem engin að engin ákvörðun hefði verið tekin af þing­flokkn­um, hefði hún lítið að segja um mál­ið.

Helga Vala Helgadóttir hefur verið þingflokksformaður Samfylkingarinnar frá því í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

„Þetta er bara mál­efni sem þarf að eiga sér stað og ræða inni í þing­flokkn­um. Það er kosið um það og farið með þetta inn í umræðu í þing­flokkn­um. Þannig það er bara ekki tíma­bært að vera að tjá sig um það,“ sagði Kristrún.

Þaul­setn­asti for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar frá stofnun

Helga Vala, sem hefur setið á þingi sem alþing­is­maður Reyk­vík­inga frá árinu 2017, hefur verið for­maður þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar frá því í fyrra.

Logi hefur verið þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis frá 2016 og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar allt frá því að hann sett­ist á þing og þar til um síð­ustu helgi, sem gerir hann að þaul­setn­asta for­manni flokks­ins frá því að Sam­fylk­ingin var stofnuð um alda­mót.

Með því að segja af sér emb­ætti for­manns sagð­ist Logi, sem kunn­gjörði þá ákvörðun sína í sam­tali við Frétta­blaðið í júní, vera að axla ábyrgð á slæ­legu gengi flokks­ins í síð­ustu þing­kosn­ing­um, en flokk­ur­inn tap­aði fylgi og fékk ein­ungis 9,9 pró­sent atkvæða á lands­vísu og sex þing­menn kjörna.

Kristrún Frostadóttir er nýr formaður Samfylkingarinnar. Hér sést hún í forgrunni, og þau Logi og Helga Vala eru í baksýn. Mynd:

Á flokks­­­stjórn­­­­­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í mars flutti Logi ræðu þar sem hann gerði upp von­brigð­in.

„Ef við horfum gagn­rýnum augum inn á við er vafa­­­laust hægt að leita skýr­inga víða; aðferðir við val á lista, mótun skila­­­boða, sam­­­skipta­hátt­um, mannauð og for­ystu flokks­ins. Og þar ber ég að sjálf­­­sögðu ábyrgð,“ sagði Logi.

Hann sagði við Frétta­blaðið í sumar að hann hefði viljað hætta strax eftir síð­ustu kosn­ing­ar, en að hann hefði verið sann­færður um að halda áfram, sem hann gerði, fram að lands­þingi sem fram fór um liðna helgi.

Þar var for­ysta Sam­fylk­ing­ar­innar end­ur­nýj­uð. Kristrún var kjörin nýr for­mað­ur, Guð­mundur Árni Stef­áns­son odd­viti flokks­ins í Hafn­ar­firði var sjálf­kjör­inn vara­for­maður og Arna Lára Jóns­dóttir bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar var kjörin rit­ari.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent