Stúdentagarðar stækka við sig í Skuggahverfi

Félagsstofnun stúdenta hefur fengið lóð við Vatnsstíg til að fjölga íbúðum við Skuggagarða. FS mun þurfa að flytja friðað hús af lóðinni yfir á þá næstu áður en framkvæmdir geta hafist.

Félagsstofnun stúdenta starfrækir Skuggagarða í miðbæ Reykjavíkur. Nú er stækkun í kortunum.
Félagsstofnun stúdenta starfrækir Skuggagarða í miðbæ Reykjavíkur. Nú er stækkun í kortunum.
Auglýsing

Borg­ar­ráð hefur sam­þykkt að úthluta Félags­stofnun stúd­enta (FS) íbúð­ar­húsa­lóðum við Vatns­stíg 12 og 12a í miðbæ Reykja­vík­ur. Heim­ilað bygg­ing­ar­magn á hvorri lóð fyrir sig er allt að 180 fer­metrar og á hvorri þeirra má byggja allt að sjö ein­stak­lings­í­búð­ir.

Hjá Félags­stofnun feng­ust þær upp­lýs­ingar að vinna við upp­bygg­ingu geti haf­ist í fyrsta lagi um mitt næsta ár. Fyrst þurfi að klára bygg­ing­ar­fram­kvæmdir á Lind­ar­götu 44 en FS vinnur nú að því að rífa hús á lóð­inni og reisa annað sem hentar starf­sem­inni bet­ur. FS hefur átt hús­bygg­ing­una á Lind­ar­götu 44 í nokkur ár og í henni hafa verið þrjár stúd­enta­í­búð­ir. Í nýju húsi við Lind­ar­götu verða tíu íbúðir fyrir stúd­enta.

Á meðan sú vinna stendur yfir er unnið að hönn­un­ar­vinnu fyrir fyr­ir­huguð hús á Vatns­stíg. Til stendur að hafa í þeim litlar ein­stak­lings­í­búðir með bað­her­bergi og sam­eig­in­legri eld­hús­að­stöðu. Gert er ráð fyrir fram­kvæmdir við Vatns­stíg muni taka í það minnsta 12 til 14 mán­uði eftir að þær hefj­ast á næsta ári.

Auglýsing

Þurfa að flytja friðað hús nokkra metra

Í bréfi frá skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara sem lagt var fyrir fund borg­ar­ráðs í síð­ustu viku kemur fram að FS muni greiða 45 þús­und krónur á hvern fer­metra fyrir bygg­ing­ar­rétt við Vatns­stíg, alls 16,2 millj­ón­ir, en það er verð bygg­ing­ar­réttar fyrir hús­næð­is­fé­lög sem rekin eru án hagn­að­ar­sjón­ar­miða. Til við­bótar greiðir FS rúma 5,1 milljón í gatna­gerð­ar­gjöld. „Á móti bygg­ing­ar­rétti verður skulda­jafnað stofn­styrk sem nemur 16.200.000 kr.,“ segir í bréf­inu.

Á lóð­unum sem FS hefur fengið úthlut­að, nánar til­tekið við Vatns­stíg 12, stendur friðað hús. Sam­starfs­samn­ingur milli Reykja­víkur og FS sem und­ir­rit­aður var í lok síð­asta mán­aðar kveður á um að FS muni sjá um flutn­ing húss­ins á Vatns­stíg 12 yfir á Vatns­stíg 10. Þar mun Félags­stofnun byggja nýjan kjall­ara sem gamla húsið verður flutt á. FS mun svo sjá um end­ur­gerð húss­ins og bygg­ingu við­bygg­ing­ar. Áður en að öllu þessu verður mun Reykja­vík­ur­borg rífa núver­andi hús á Vatns­stíg 10.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent