Stuðningur við ríkisstjórnina aldrei verið minni en nú

fors..umynd_..kr_.fuhafast.ff_.jpg
Auglýsing

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 30,7 pró­sent í nýj­ustu könnun MMR og hefur aldrei verið minni en nú. Fram að þessu var minnsti stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 33 pró­sent í nóv­em­ber síð­ast­liðn­um. Í síð­ustu könnun MMR, frá því í byrjun apr­íl, mæld­ist rík­is­stjórnin með 35,3 pró­senta fylg­i. Í byrjun kjör­tíma­bils­ins mæld­ist rík­is­stjórnin með tæp­lega 60 pró­senta fylgi.

Þegar rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna fór frá völdum mæld­ist hún með meira fylgi en núver­andi rík­is­stjórn ger­ir, eða 31,5 pró­senta fylgi. Fylgi þeirrar rík­is­stjórnar fór þó á tíma­bili lægra en hjá núver­andi rík­is­stjórn. Minnst var ánægjan með störf þeirrar rík­is­stjórnar í októ­ber 2010, 22,5 pró­sent. Þá voru Ices­a­ve-­deil­urnar í algleym­ingi á Íslandi.

Auglýsing


Í könn­unum MMR á fylgi stjórn­mála­flokka er spurt hvort við­kom­andi styðji rík­is­stjórn­ina. 83,6 pró­sent tóku afstöðu til spurn­ing­ar­inn­ar, en hafa verður í huga að vik­mörk í könn­unum sem þessum geta verið allt að 3,1 pró­sent.

Mæl­ast úr takti við almenn­ing og fáir telja þá heið­ar­lega



Þetta er önnur könn­unin frá MMR sem birt er á skömmum tíma sem kemur illa út fyrir stjórn­ar­flokk­anna og for­ystu­menn henn­ar. Í síð­ustu viku birt­ist könnun þar sem spurt var út í ýmsa per­sónu­eig­in­leika stjórn­mála­leið­toga. Þar kom meðal ann­ars fram að fimm ­pró­sent aðspurðra telja að for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­inn­ar, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son, séu í tengslum við almenn­ing.

Aðeins níu pró­sent aðspurðra telja Sig­mund Davíð vera heið­ar­legan, og tíu pró­sent telja Bjarna heið­ar­leg­an. Þá segja átta pró­sent að Bjarni standi vörð um hags­muni almenn­ings, og 11 pró­sent telja að Sig­mundur Davíð geri það. Fimm pró­sent telja að Sig­mundur virði skoð­anir ann­arra og átta pró­sent telja að það geri Bjarni.

Helm­ingur aðspurðra sagði að Sig­mundur Davíð væri ekki gæddur neinum þeim per­sónu­eig­in­leikum sem spurt var um. 40 pró­sent sögðu það sama um Bjarna.

Einum af hverjum fimm þykir Bjarni Bene­dikts­son vera gæddur per­sónu­töfr­um, en fimm pró­sent segja það sama um Sig­mund Dav­íð. Sig­mundur mælist hærri en Bjarni þegar kemur að því hvort fólk telji þá standa við eigin sann­fær­ingu – 21 pró­sent telja það gilda um Sig­mund og 19 pró­sent um Bjarna.

18 pró­sent telja Bjarna vera sterkan og ell­efu pró­sent Sig­mund. Þá telja þrettán pró­sent að Bjarni sé fæddur leið­togi en fimm pró­sent telja að for­sæt­is­ráð­herr­ann sé fæddur leið­togi. 27 pró­sent sögðu Bjarna vera ákveð­inn, 15 pró­sent telja hann vinna vel undir álagi og 16 pró­sent segja hann skila árangri. Rétt rúm­lega fimmt­ungur (22 pró­sent) segja Sig­mund vera ákveð­inn, átta pró­sent að hann vinni vel undir álagi og 15 pró­sent telja hann skila árangri.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None