Stuðningur við ríkisstjórnina ekki mælst meiri frá því í janúar 2018

Fylgi Vinstri grænna eykst milli mánaða en fylgi Framsóknar dalar og er nú aftur komið í kjörfylgi. Sjálfstæðisflokkurinn er eini stjórnarflokkurinn sem mælist með minna fylgi en hann fékk í kosningunum.

Katrín Jakobsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson búast öll við því að endurnýja stjórnarsamstarf flokka sinna í þessari viku, eða þeirri næstu.
Katrín Jakobsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson búast öll við því að endurnýja stjórnarsamstarf flokka sinna í þessari viku, eða þeirri næstu.
Auglýsing

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist 53,6 pró­sent í nýrri könnun MMR sem er tæp­lega pró­sentu­stigi meira en í könnun fyr­ir­tæk­is­ins sem var gerð í lok októ­ber og en 0,7 pró­sentu­stigum minna en flokk­arnir þrír fengu í kosn­ing­unum í sept­em­ber.

Á milli mán­aða lækkar fylgi Fram­sókn­ar­flokks úr 19,2 í 17,5 pró­sent en er samt rétt yfir því sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um, þar sem hann vann kosn­inga­sig­ur. 

Vinstri græn bæta við sig 2,4 pró­sentu­stigum milli mán­aða og alls 13,9 pró­sent segj­ast nú styðja flokk­inn, sem er 1,3 pró­sentu­stigi meira en í kosn­ing­unum í sept­em­ber. 

Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist með minna fylgi nú en hann fékk upp úr kjör­köss­unum er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, en 22,2 pró­sent segja að þeir myndu kjósa hann nú, sem er 2,4 pró­sentu­stigum minna en gerðu það í síð­ustu kosn­ing­um. Þetta er annar mán­uð­ur­inn í röð sem fylgi flokks­ins mælist nán­ast það sama. 

Auglýsing
Stuðningur við rík­is­stjórn­ina mælist nú 60 pró­sent og hefur ekki mælst meiri frá því í jan­úar 2018, nokkrum vikum eftir að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók fyrst við völd­um.

Stjórn­ar­and­staðan ekki að hress­ast mikið

Sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á þingi mælist 41,9 pró­sent. Stærstir mæl­ast Píratar með 12,4 pró­sent fylgi, sem er 3,8 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum og aðeins meira en hann mæld­ist með í lok októ­ber. 

Sam­fylk­ingin hress­ist aðeins á milli kann­ana og er með 11,1 pró­sent fylgi, sem er um 1,2 pró­sentu­stigi meira en hún fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber. 

Við­reisn virð­ist nokkuð stöðug í kjör­fylgi, sem var 8,3 pró­sent. Í síð­ustu tveimur könn­unum MMR hefur fylgi flokks­ins mælst nákvæm­lega átta pró­sent.

Tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar á þingi mæl­ast nú með mæl­an­lega minna fylgi en þeir fengu í sept­em­ber. Alls segj­ast 4,2 pró­sent styðja Mið­flokk­inn, sem fékk 5,4 pró­sent í síð­ustu kosn­ing­um, og 6,2 pró­sent styðja Flokk fólks­ins, sem fékk 8,8 pró­sent í kosn­ing­unum í sept­em­ber. 

Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem fékk 4,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum og náði ekki inn manni, mælist nú með 3,7 pró­sent fylgi og 0,8 pró­sent kjós­enda myndu kjósa eitt­hvað annað en ofan­greinda níu flokka ef kosið yrði í dag.

Könn­unin var fram­kvæmd 10. - 15. nóv­em­ber 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 918 ein­stak­ling­ar, 18 ára og eldri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent