Stýrivextir hækkaðir um 0,75 prósent – Hafa ekki verið hærri í sex ár

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti upp í 5,5 prósent. Þeir hafa nú hækkað um 4,75 prósentustig frá því í maí í fyrra, en eru enn langt undir verðbólgunni.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar.
Auglýsing

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands voru í dag hækk­aðir um 0,75 pró­sentu­stig í 5,5 pró­sent. Vext­irnir hafa ekki verið svo háir síðan í ágúst 2016, eða í sex ár. Eftir nýj­ustu vaxta­hækk­un­ina hefur pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hækkað vexti um um 4,75 pró­sentu­stig síðan í maí í fyrra. Á þessu ári einu saman hafa vext­irnir hækkað um 3,5 pró­sentu­stig, en þeir voru tvö pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Ástæða þessa er mikil verð­bólga, sem mælist 9,9 pró­sent um þessar mundir og búist er við að hún skríði upp í tveggja stafa tölu við næstu birt­ingu. Sú verð­bólga hefur að mestu verið drifin áfram af hækk­andi íbúða­verði.

Búast má við því að lán­veit­endur hækki vexti íbúða­lána í kjöl­farið og að greiðslu­byrði heim­ila auk­ist sam­hliða umtals­vert.

Versn­andi verð­bólgu­horfur og aðvörun til vinnu­mark­að­ar­ins

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að sam­kvæmt upp­færðri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans sem birt er í ágúst­hefti Pen­inga­mála eru horfur á tæp­lega sex pró­sent hag­vexti í ár sem er 1,3 pró­sentum meiri vöxtur en spáð var í maí. „Stafar það einkum af þrótt­meiri einka­neyslu og hrað­ari bata í ferða­þjón­ustu. Störfum heldur áfram að fjölga og atvinnu­leysi að minnka og meiri spenna hefur mynd­ast í þjóð­ar­bú­inu en áætlað var í maí.“

Auglýsing
Verðbólguhorfur hafi hins vegar áfram versnað og nú er gert ráð fyrir að hún nái hámarki undir lok árs­ins í tæp­lega ell­efu pró­sent­um. „Verri verð­bólgu­horfur end­ur­spegla kröft­ugri umsvif í þjóð­ar­bú­skapnum en gert var ráð fyrir í maí og þrá­lát­ari hækk­anir á hús­næð­is­mark­aði auk meiri alþjóð­legrar verð­bólgu. Þá hafa verð­bólgu­vænt­ingar hækkað enn frekar á flesta mæli­kvarða.“

Pen­inga­stefnu­nefnd telur lík­legt að herða þurfi taum­hald pen­inga­stefn­unnar enn frekar til að tryggja að verð­bólga hjaðni í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma. „Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga. Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.“

Skýr merki um að mark­að­ur­inn sé að kólna

Íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 15,5 pró­sent síð­ustu sex mán­uði og 25,5 pró­sent síð­asta árið. Ef horft er aftur til upp­hafs kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem hófst af alvöru hér­lendis í mars 2020, þá hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 48 pró­sent.

Á land­inu öllu hækk­aði íbúða­verð um 26,4 pró­sent frá júní í fyrra og til loka sama mán­aðar í ár. Verðið hækk­aði meira í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­inu og ann­ars staðar á lands­byggð­inni en í höf­uð­borg­inni sjálfri og sveit­ar­fé­lög­unum sem liggja að henni.

Skýr merki eru þó um að hús­næð­is­mark­að­ur­inn sé að kólna. Líkt og Kjarn­inn greindi frá því gær þá hefur veru­lega hægt á hækk­unum á mark­aðnum – hækkun á verði var 1,1 pró­sent milli síð­ustu mán­aða og hefur ekki verið minni um langa hríð – ásamt því að fram­boð íbúða er að aukast. Ef horft er á sex mán­aða hlaup­andi með­al­tal þá hafa kaup­samn­ingar ekki verið færri frá því í apríl 2015.

Þetta bendir til þess að skarpar stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­banka Íslands, ásamt tak­mörk­unum sem hann hefur sett á útlán, hafi verið að bíta. Hærri stýri­vextir gera það enda að verkum að hámarks­láns­fjár­hæð sem heim­ilin geta tekið til að kaupa sér hús­næði minnk­ar.

Í mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um hús­næð­is­mark­að­inn sem birt var í gær var bent á að á meðan að stýri­vextir hækk­uðu tvö pró­sentu­stig frá því í maí á þessu ári og þangað til í gær hafi verð­bólgan vaxið um fimm pró­sentu­stig á sama tíma. Því hafa stýri­vextir lækkað að raun­virði. Í umfjöllun HMS segir að stýri­vextir hafi nú verið lægri en verð­bólga allt frá því í apríl 2020. „Aldrei áður hafa þeir verið undir verð­bólgu í svo langan tíma.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent