Hreinn tímabundið aðstoðarmaður ráðherra á ný og Áslaug Hulda fær fastráðningu

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur haft fjóra aðstoðarmenn á þeim tæpu níu mánuðum sem liðnir eru frá því að ný ríkisstjórn tók til starfa. Hreinn Loftsson, sem var aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar í tvær vikur í desember, er mættur aftur til starfa.

Hreinn Loftsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Áslaug Hulda Jónsdóttir.
Hreinn Loftsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Áslaug Hulda Jónsdóttir.
Auglýsing

Hreinn Lofts­son, sem hætti sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra í des­em­ber síð­ast­liðn­um, um tveimur vikum eftir að hafa verið ráð­inn í starf­ið, er aftur orð­inn aðstoð­ar­maður ráð­herra. Hann hefur tekið tíma­bundið við starfi aðstoð­ar­manns Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Hreinn, sem aðstoð­aði Áslaugu Örnu á síð­asta kjör­tíma­bili þegar hún var dóms­mála­ráð­herra, hleypur í skarðið fyrir Eydísi Örnu Líndal, sem verður í fæð­ing­ar­or­lofi þar til um næstu ára­mót. Ey­dís Arna aðstoð­aði Áslaugu Örnu einnig á síð­asta kjör­tíma­bili.

Í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu kemur einnig fram að Áslaug Hulda Jóns­dótt­ir, sem sótt­ist eftir því að verða odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum en hafði ekki erindi sem erf­iði, sé orðin fast­ráðin aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu. Áslaug Hulda, sem er fyrr­ver­andi for­maður bæj­ar­ráðs Garða­bæjar en hætti þátt­töku í sveit­ar­stjórn­ar­málum eftir að hafa tapað odd­vitaslagnum þar fyrr á þessu ári, bauð sig fram til rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins á flokks­ráðs- og for­manna­fundi flokks­ins 2019. Hún tap­aði naum­lega fyrir Jóni Gunn­ars­syni, fékk 117 atkvæði en Jón 135.

Áslaug Hulda tók tíma­bundið við starfi aðstoð­ar­manns ráð­herr­ans í apríl eftir að Eydís Arna fór í fæð­ing­ar­or­lof. Sú vend­ing hefur orðið síðan þá að hinn aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu, Magnús Júl­í­us­son, lét af störfum eftir að hafa verið kjör­inn í stjórn Festi í júlí. Hann hafði verið aðstoð­ar­maður ráð­herra frá því í des­em­ber í fyrra. 

Því liggur fyrir að Áslaug Arna hefur haft fjóra mis­mun­andi aðstoð­ar­menn það sem af er kjör­tíma­bili, en annað ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur tók til starfa 28. nóv­em­ber 2021, eða fyrir tæpum níu mán­uðum síð­an.

Var of fljótur á sér

Þegar Hreinn hætti sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­son­ar, eftir tveggja vikna starf, birti hann stöðu­upp­færslu á Face­book þar sem hann sagð­ist hafa verið of fljótur á sér að þiggja boð Jóns. Í milli­tíð­inni, frá því að Hreinn var ráð­inn og þar til hann hætti, var Brynjar Níels­son ráð­inn í hina aðstoð­ar­manna­stöð­una sem Jón má fylla sam­kvæmt lög­um. 

Auglýsing
Í Face­book-­færsl­unni sagði: „„​Þegar ég tók við starfi sem aðstoð­­ar­­maður Áslaugar Örnu Sig­­ur­­björns­dótt­­ur, dóms­­mála­ráð­herra, fyrir rétt rúmum tveimur árum lét ég þau orð falla að ég liti á það sem mik­inn heiður og fag­­lega áskorun að taka að mér þetta verk­efni. Árin hafa svo sann­­ar­­lega verið við­­burða­­rík. Mál­efni ráðu­­neyt­is­ins eru fjöl­­mörg og spenn­andi. Ég tók því boði Jóns Gunn­­ar­s­­sonar þegar hann bauð mér að halda áfram störfum við ráð­herra­­skiptin í byrjun mán­að­­ar­ins. Fljót­­lega komst ég þó að raun um að ég hafði verið of fljótur á mér og hef nú afráðið að láta af störf­­um.“

Jón hefur síðan ráðið Teit Björn Ein­ars­son í þá aðstoð­ar­manna­stöðu sem Hreinn skildi eftir opna. 

Aðstoð­­­ar­­­mönnum fjölgað 2011

Lögum um Stjórn­­­­­­­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­­­­ar­­­­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­­­­is­­­­stjórn­­­­ina að ráða þrjá aðstoð­­­­ar­­­­menn til við­­­­bótar ef þörf kref­­­­ur. Í lög­­­­unum segir að „meg­in­hlut­verk aðstoð­­­­ar­­­­manns ráð­herra er að vinna að stefn­u­­­­mótun á mál­efna­sviði ráðu­­­­neytis undir yfir­­­­­­­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­­­­neyt­is­­­­stjóra.“ 

Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­­­­­ar­­­­­manna­­­­­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­­­­­ast um að ræða nán­­­­­ustu sam­­­­­starfs­­­­­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Skömmu eftir að lög­­­­unum var breytt var ráð­herrum fækkað í átta, en þeir höfðu verið tólf þegar rík­­­­is­­­­stjórn Sam­­­­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við völdum árið 2009.

Síðan hefur ráð­herrum verið fjölgað aftur jafnt og þétt með hverri rík­­­­is­­­­stjórn­­­­inni og í dag eru þeir orðnir tólf. Það þýðir að fjöldi leyf­­­i­­­­legra aðstoð­­­­ar­­­­manna hefur líka auk­ist.

Alls má rík­­­­is­­­­stjórnin því ráða 27 aðstoð­­­­ar­­­­menn sem stend­­­ur. Laun og starfs­­­­kjör aðstoð­­­­ar­­­­manna ráð­herra mið­­­­ast við kjör skrif­­­­stofu­­­­stjóra í ráðu­­­­neytum sam­­­­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

Kostn­aður við rekstur rík­­is­­stjórnar auk­ist

Rekstur rík­­­­is­­­­stjórnar Íslands, sem í fel­­­­ast launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­­­­ar­­­­manna þeirra, er áætl­­­­aður 714,9 millj­­­ónir króna á þessu ári sam­­­kvæmt fjár­­lög­­um. Það er um fimm pró­­­sent meiri kostn­aður en áætlun vegna árs­ins 2021 gerir ráð fyr­ir, en þá átti rekst­­­ur­inn að kosta 681,3 millj­­­ónir króna.

Á fyrsta heila ári fyrri rík­­­­is­­­­stjórn­­­­­­­ar­innar Katrínar Jak­obs­dóttur við völd, árið 2018, var kostn­aður vegna launa ráð­herra og aðstoð­­­­ar­­­­manna áætl­­­aður 461 millj­­­­ónir króna. Kostn­að­­­ur­inn á þessu ári er því 55 pró­­­sent hærri í krónum talið. 

Kostn­að­­­ur­inn á þessu fyrsta starfs­ári rík­­­is­­­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­­­stæð­is­­­flokks og Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks reynd­ist á end­­­anum hærri, eða 597 millj­­­ónir króna. Því hefur kostn­að­­­ur­inn vegna launa ráð­herra og aðstoð­­­ar­­­manna þeirra alls vaxið um 117,9 millj­­­ónir króna frá 2018, eða 20 pró­­­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent