Styrkjakerfi fyrir einkarekna fjölmiðla samþykkt á Alþingi

Alþingi afgreiddi í dag frumvarp mennta- og menningarmálaráðherra um styrkjakerfi fyrir einkarekna fjölmiðla. Þorri þeirra 400 milljóna króna sem skipt verður á milli fjölmiðla fer til þriggja stórra fjölmiðlafyrirtækja.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Auglýsing

Frum­varp Lilju D. Alfreðs­dótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, um styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla, var sam­þykkt á Alþingi í dag. Alls greiddu 34 þing­menn atkvæði með frum­varp­inu, en ell­efu á móti og tólf þing­menn greiddu ekki atkvæði.

Þeir þing­menn sem greiddu atkvæði gegn frum­varp­inu voru allir þing­menn Mið­flokks­ins auk Sig­ríðar Á. And­er­sen, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks og Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar úr Flokki fólks­ins. Þrír stjórn­ar­lið­ar, allir úr Sjálf­stæð­is­flokki, sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una. Þeir eru Brynjar Níels­son, Jón Gunn­ars­son og Óli Björn Kára­son. Þing­menn Sam­fylk­ingar voru einu stjórn­ar­and­stæð­ing­ar­innar sem studdu frum­varpið og gerðu það ásamt öllum við­stöddum þing­mönnum Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks og ell­efu þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks.

Í frum­varp­inu felst að 400 millj­ónum króna verður skipt á milli þeirra einka­reknu fjöl­miðla sem upp­fylla skil­yrði fyrir styrkja­greiðsl­unni.

Auglýsing
Upphaflega stóð til að styrkirnir yrðu að hámarki 50 millj­ónir króna til hvers fjöl­mið­ils, en frum­varpið átti í erf­ið­leikum að ná í gengum þing­flokk Sjálf­stæð­is­flokks í því formi. Því var þakið hækkað upp í 100 millj­ónir króna sem þýðir að þrjú stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins: Árvak­ur, Torg og Sýn, fá rúm­lega 100 millj­ónum krónum meira en í fyrri útgáfu og um 20 minni fjöl­miðlar fyrir vikið um 100 millj­ónum krónum minna.

Styrkja­kerfið verður við lýði út næsta ár og fjöl­miðlar verða að sækja um styrki fyrir 1. ágúst næst­kom­andi.

Frum­varpið byggir á nefnd­ar­á­liti meiri­hluta alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar, sem var birt fyrr í þessum mán­uði.

Sam­kvæmt álit­inu gerði meiri­hlut­inn nokkrar breyt­ingar á frum­varp­inu. Þar ber hæst að sett verði þrengri skil­yrði um til að telj­ast stuðn­ings­hæfur fjöl­mið­ill.

Sú þreng­ing felur í ann­ars vegar í sér að lág­marks­út­gáfu­tíðni prent­mið­ils þar að vera að minnsta kosti 20 útgáfur á ári og aðrir miðlar sem hljóti styrk þurfi að „miðla nýjum frétt­um, frétta­tengdu efni eða umfjöllun um sam­fé­lags­leg mál­efni á virkum dögum í 20 vikur á ári.“

Í frum­varp­inu sem Lilja lagði upp­haf­lega fram í des­em­ber stóð að launa- og verk­taka­kostn­aður allra sem öfl­uðu og miðl­uðu efni væri stuðn­ings­hæf­ur. Meiri­hlut­inn hefur lagt til að þessi skil­yrði verði þrengd veru­lega og að þeir miðlar einir verði stuðn­ings­hæfir sem afli og miðli „frétt­um, frétta­tengdu efni og umfjöllun um sam­fé­lags­leg mál­efn­i.“

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­fyllir skil­yrði frum­varps­ins um styrkja­greiðslu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent