Svíþjóðardemókratar mælast stærsti flokkur Svíþjóðar í umdeildri könnun

rsz_h_51570379.jpg
Auglýsing

Sví­þjóð­ar­demókratar mæl­ast stærstir allra flokka í Sví­þjóð sam­kvæmt nýrri könnun You­Gov, sem birt var í sænska blað­inu Metro í morg­un. Þetta er í fyrsta skipti sem flokk­ur­inn mælist svo stór.

Fjórð­ungur aðspurðra kjós­enda sagð­ist myndu kjósa flokk­inn. Jafn­að­ar­menn feng­u ­stuðn­ing 23,4 pró­senta aðspurðra og Modera­terna, stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn á þing­inu, hlaut 21 pró­senta stuðn­ing.

Í Metro í dag segir Sören Holm­berg pró­fessor í stjórn­sýslu­fræðum við Gauta­borg­ar­há­skóla að nið­ur­staðan komi ekki á óvart. Þessi þróun hafi átt sér stað um langt skeið. Ástæða fyrir aukn­ing­unni gæti til að mynda verið að 46 pró­sent kjós­enda telji útlend­inga­mál vera mik­il­væg­asta póli­tíska málið um þessar stund­ir, sam­kvæmt sömu könnun You­Gov.

Auglýsing

Könn­unin hefur hins vegar einnig verið gagn­rýnd. Stjórn­mála­spek­ing­ur­inn Stina Morian bendir á það að könn­unin hafi verið fram­kvæmd við sér­stakar aðstæð­ur, í tengslum við nýleg morð sem framin voru í IKEA-verslun í Sví­þjóð af hæl­is­leit­anda. Nú sé mikil umræða á net­inu um þessi mál. Hún seg­ist ekki hafa trú á því að þetta fylgi sé komið til að vera, en hins veg­ar ­gæti hún trúað því að Sví­þjóð­ar­demókratar yrðu næst­stærsti flokkur lands­ins í næstu kosn­ing­um, vegna þess að aðrir flokkar hafi ekki hlustað á áhyggjur kjós­enda.

Í umfjöllun sænska rík­is­sjón­varps­ins SVT um könn­un­ina er rætt við stjórn­mála­fræð­ing­inn Andr­eas Johans­son Heinö, sem varar við því að fólk taki nið­ur­stöður könn­un­ar­innar of alvar­lega. You­Gov noti ekki slembi­úr­tök heldur skrái fólk sig sjálft og því ekki hægt að heim­færa nið­ur­stöð­urnar á stærra þýði.

Nið­ur­stöð­urnar eru betri fyrir Sví­þjóð­ar­demókratana í þess­ari nýju You­Gov könnun en í öðrum nýlegum könn­un­um. Hins vegar eru flestir stjórn­mála­skýrendur sem rætt er við í sænskum fjöl­miðlum sam­mála um að Sví­þjóð­ar­demókratar hafi aukið við sig fylgi og að það komi ekki á óvart. Í síð­ustu kosn­ingum hlaut flokk­ur­inn 12,9 pró­sent atkvæða, og tvö­fald­aði þing­manna­fjölda sinn milli kosn­inga.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None