Tæknifyrirtækin allsráðandi á First North-markaðnum

Fjölmörg fyrirtæki sem eru í örum vexti einblína á tækniþróun með einhverjum hætti fóru í frumútboð á hlutabréfamarkað í fyrra á Norðurlöndum. Baldur Thorlacius hjá Nasdaq Iceland fer yfir stöðuna í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland.
Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland.
Auglýsing

Tækni­þróun er það ofurafl sem flest vaxt­ar­fyr­ir­tæki sem skráðu sig á First North- hluta­bréfa­mark­að­inn í fyrra gera út á, en auk þess eru fyr­ir­tæki í líf­tækni, heil­brigð­is­vís­indum og umhverf­is­málum áber­andi. Þetta segir Baldur Thor­laci­us, fram­kvæmda­stjóri sölu- og við­skipta­tengsla hjá Nas­daq Iceland, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ing­ar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Ár útboða

Í grein­inni fer Baldur yfir frumút­boð fyr­ir­tækja sem skráðu sig á First North vaxt­ar­mark­að­inn í kaup­höllum Norð­ur­land­anna í fyrra. Sam­kvæmt honum voru þau alls 136, en til við­bótar skráði 31 þeirra sig á markað án útboða. Hann segir að metár hafi verið í frumút­boðum á Norð­ur­löndum og í Banda­ríkj­un­um, þar sem áhugi fjár­festa var mik­ill og aðstæður til útboða þóttu almennt góð­ar.

Baldur flokkar fyr­ir­tækin sem fóru í frumút­boð eftir svoköll­uðum ofuröflum (e. megatrends), en það eru straumar og stefnur sem móta og gjör­bylta sam­fé­lag­inu okk­ar. Ofuröflin sem hann til­greinir eru fimm tals­ins: Færsla á efna­hags­legu valdi, þétt­býl­is­mynd­un, lofts­lags­breyt­ing­ar, breyt­ingar í lýð­fræði og tækni­þró­un.

Auglýsing

Lang­flest fyr­ir­tækj­anna, eða 81 pró­sent þeirra, gerðu út á tækni­þróun með einum eða öðrum hætti. Í öðru sæti er svo lýð­fræði og sam­fé­lags­legar breyt­ing­ar, en 22 pró­sent fyr­ri­tækj­anna virð­ast leggja áherslu á þann lið. Í þessum flokki eru fyr­ir­tæki sem startfa á sviði heilsu­tækni, auk ann­arra sem sinna þjón­ustu við aldr­aða.

Í þriðja sætið eru umhverf­is­mál, en sá mála­flokkur er hluti af kjarna­starf­semi fimmt­ungs fyr­ir­tækj­anna sem fóru í frumút­boð í fyrra. Minna er um fyr­ir­tæki sem gera út á þétt­ingu byggðar og færslu á efn­hags­legu valdi, en sam­an­lagt leggja um átta pró­sent fyr­ir­tækj­anna áherslu á þá liði.

„Þegar ég horfi til fram­tíðar í gegnum óvís­inda­legu nor­rænu frumút­boðs­gler­augun mín sé ég að tæknin er alls­ráð­and­i,“ segir Baldur í grein­inni sinni. „Þetta kemur auð­vitað ekki á óvart. Fyr­ir­tæki í líf­tækni og öðrum heil­brigð­is­vís­indum eru orðin meira áber­andi í hópi stærstu og öfl­ug­ustu fyr­ir­tækja Norð­ur­land­anna og umhverf­is­málin eru orðin risa­vax­inn iðn­að­ur.“

Hann bætir við að tím­inn muni leiða í ljós hvort þessar áherslur mark­að­ar­ins hafi verið rétt­ar, en mögu­lega séu þarna ein­hver tæki­færi sem mark­að­ur­inn sé að missa af. Slíkt verði hins vegar ein­ungis útkljáð á meðal frum­kvöðla og fjár­festa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent