Teitur Björn ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar

Aðstoðarmaður dómsmálaráðherra hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar á sviði sjálfbærni og þjóðaröryggismála. Aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar eru þar með orðnir þrír talsins.

Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Hann starfaði áður sem aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra.
Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Hann starfaði áður sem aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­hhera, hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu en ráðn­ing Teits var til umfjöll­unar á rík­is­stjórn­ar­fundi í morg­un.

Hann mun meðal ann­ars sinna verk­efnum á sviði sjálf­bærni og þjóðar­ör­ygg­is­mála auk þess að vinna að sam­hæf­ingu mála ásamt öðrum aðstoð­ar­mönn­um.

Teitur Björn var aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra frá febr­úar síð­ast­liðnum en áður starf­aði hann sem lög­maður hjá Íslensku lög­fræði­stof­unni og sem aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra. Þá var hann kjör­inn á þing fyrir Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn í Norð­vest­­ur­­kjör­­dæmi árið 2016, en hann hefur verið vara­­þing­­maður flokks­ins frá árinu 2017. Í síð­­­ustu kosn­­ingum var hann í þriðja sæti á lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Auglýsing

Jón Gunn­ars­son tók við sem dóms­mála­ráð­herra þegar rík­is­stjórn­ar­sam­starf Sjálf­stæði­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks var end­ur­nýjað eftir síð­ustu kosn­ing­ar. Vera hans í dóms­mála­ráðu­neyt­inu mun hins vegar brátt líða undir lok þegar Guð­rún Haf­steins­dótt­ir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tekur við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra. Þegar rík­is­stjórnin var kynnt í lok nóv­em­ber í fyrra kom fram að Guð­rún myndi taka við af Jóni eftir að hámarki 18 mán­uði.

Guð­rún hefur gefið það út að hún reikni með að velja sína aðstoð­ar­menn sjálf. „Þannig hefur það alltaf ver­ið,“ sagði Guð­rún í sam­tali við Frétta­blaðið í des­em­ber, eftir að Hreinn Lofts­son hætti sem aðstoð­ar­maður Jóns eftir tvær vikur í starfi. Ásamt Teiti hefur Brynjar Níels­son starfað sem aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra.

Teitur Björn verður þriðji aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Henný Hinz er aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar á sviði vinnu­mark­aðs-, efna­hags- og lofts­lags­mála og Dagný Jóns­dóttir aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar um sam­hæf­ingu mála.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent