„Það er ljótt að plata“

Þingmaður Viðreisnar segir að í orðum innviðaráðherra og formanns Framsóknarflokksins kristallist það viðhorf forystu flokksins að „sjálfstæðir viðskiptabankar eigi að hlusta eftir duttlungum stjórnmálamanna þegar kemur að vaxtaákvörðunum“.

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

„Það er ljótt að plata, sagði for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sig­urður Ingi Jóhanns­son, ábúð­ar­fullur og alvöru­gef­inn í sjón­varps­þætti dag­inn fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ing­ar. Þá var reyndar eng­inn að plata, en auð­vitað geta all­ir, hvort sem þeir eru Fram­sókn­ar­menn eða ekki, tekið undir þessa almennu sið­fræði sem við kennum börn­unum okkar á hverjum degi. Það er nefni­lega ljótt að plata.“

Þannig hóf Sig­mar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar ræðu sína undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Ástæðan fyrir upp­rifjun þing­manns­ins á þessum orðum Sig­urðar Inga voru orða­skipti hans og Loga Ein­ars­sonar for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á þing­inu í síð­ustu viku.

Auglýsing

Orð Lilju breyttu engu

„Þá var rætt um orð vara­for­manns Fram­sóknar og við­skipta­ráð­herra, Lilju Alfreðs­dótt­ur, sem vöktu mikla athygli, um að ofur­hagnað bank­anna ætti að nýta til að lækka vexti á hús­næð­is­lánum heim­il­anna. Í leið­inni var því hótað að ann­ars yrði banka­skattur end­ur­vak­inn. Hinir stjórn­ar­flokk­arnir skutu þetta strax hressi­lega nið­ur, reyndar með því þving­aða og kurt­eis­lega orða­lagi sem gjarnan fylgir ást­lausum hjóna­böndn­um. Rík­is­stjórnin hafði hvorki rætt þetta né vildi hún fara þessa leið.

For­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins full­yrti sem sagt hér á Alþingi í síð­ustu viku að bank­arnir hefðu hlustað eftir orðum við­skipta­ráð­herra og farið algjör­lega eftir þeim, alger­lega. Með öðrum orð­um, það er skoðun Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar að bank­arnir hafi hækkað vext­ina minna en þeir hefðu ann­ars gert vegna þess að Lilja Alfreðs­dóttir við­skipta­ráð­herra sagði þeim að gera það. Hið rétta er að það er ekk­ert sem bendir til þess að við­skipta­bank­arnir hafi gert þetta. Þeir brugð­ust nákvæm­lega eins við stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans nú síð­ast og þeir gerðu áður, til að mynda í fjögur skipti á síð­asta ári,“ sagði Sig­mar og bætti því við að orð Lilju hefðu engu breytt, „ekki nokkrum sköp­uðum hlut“.

Sagði þing­mað­ur­inn að eftir þetta stæði því þrennt.

„Í fyrsta lagi voru orð við­skipta­ráð­herra án allrar inn­stæðu. Þetta var póli­tísk lýta­að­gerð til að fegra ásjónu rík­is­stjórnar sem boð­aði lág­vaxtaum­hverfi fyrir kosn­ingar en getur ekki staðið við það. Í öðru lagi krist­all­ast í þessu það við­horf for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins að sjálf­stæðir við­skipta­bankar eigi að hlusta eftir duttl­ungum stjórn­mála­manna þegar kemur að vaxta­á­kvörð­un­um. Og í þriðja lagi: Það er ljótt að plata,“ sagði hann að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent