Eimskip hættir að koma við í Múrmansk „í ljósi stöðunnar“

Eimskipafélag Íslands hefur tekið ákvörðun um að stefna skipum sínum ekki til Múrmansk í norðvesturhluta Rússlands á næstunni, en borgin er hluti af einni siglingaleið félagsins.

Múrmansk hefur verið hluti af svokallaðri appelsínugulri siglingaleið Eimskipafélagsins.
Múrmansk hefur verið hluti af svokallaðri appelsínugulri siglingaleið Eimskipafélagsins.
Auglýsing

Skipa­fé­lagið Eim­skip hefur „í ljósi stöð­unn­ar“ tekið ákvörðun um að hætta tíma­bundið við­komum í Múrm­ansk, sem er eina rúss­neska borgin sem er hluti af sigl­inga­á­ætlun félags­ins.

Þetta kemur fram í svari fyr­ir­tæk­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans, sem laut að því hvort inn­rás Rúss­lands í Úkra­ínu og afleidd áhrif hern­að­ar­að­gerð­anna myndu hafa ein­hver áhrif á sigl­ingar félags­ins í rúss­neskar hafn­ir.

Við­koman í Múrm­ansk hefur verið hluti af svo­kall­aðri app­el­sínugulri leið í sigl­inga­á­ætlun Eim­skipa, en sigl­inga­leiðin þræðir sig frá Englandi og Hollandi norður með­fram ströndum Nor­egs og alla jafna yfir til rúss­nesku borg­ar­inn­ar.

Auglýsing

Nú verður Kirkenes í Norð­ur­-Nor­egi þó enda­stöð app­el­sínu­gulu leið­ar­inn­ar, að minnsta kosti um ein­hvern tíma, sam­kvæmt Eddu Rut Björns­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra mannauðs- og sam­skipta­sviðs hjá fyr­ir­tæk­inu.

Þjón­ustan gagn­vart Úkra­ínu, Rúss­landi og Hvíta-Rúss­landi skert

Eim­skip sagði frá því í til­kynn­ingu í upp­hafi mán­aðar að sér­fræð­ingar félags­ins fylgd­ust grannt með þróun mála í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkra­ínu.

„Skipa­fé­lög sem eru sam­starfs­að­ilar Eim­skips hafa ýmist stöðvað eða skert þjón­ustu sína til þeirra hafna sem tengj­ast Úkra­ínu, Rúss­landi og Hvíta-Rúss­landi þannig að þjón­usta Eim­skips gagn­vart þessum löndum er skert eins og staðan er nún­a,“ ­sagði í þeirri til­kynn­ingu.

Þar var þess einnig getið að óvissa ríkti um afgreiðslu í höfnum í Evr­ópu á flutn­ingum til og frá þessum löndum og að félagið hygð­ist vinna náið með við­skipta­vinum sínum og við­eig­andi yfir­völdum í þessum aðstæðum til að tryggja bestu mögu­legu lausn­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent