Það kostar 540 milljónir á ári að tvöfalda frítekjumark ellilífeyrisþega

Tvöföldum á frítekjumarki ellilífeyrisþegar nýtist nokkur þúsund manns og kostar rúmlega 60 prósent af þeim tekjum sem ríkið verður af á næsta ári vegna þess að gistináttaskattur verður ekki rukkaður inn.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar á þriðjudag.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar á þriðjudag.
Auglýsing

Eina útfærða aðgerð nýrrar rík­is­stjórnar til að bæta hag líf­eyr­is­þega er tvö­földun á sér­stöku frí­tekju­marki vegna atvinnu­tekna elli­líf­eyr­is­þega. Markið á að hækka úr 100 í 200 þús­und krónur um kom­andi ára­mót. 

Helgi Pét­urs­son, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara, sagði við Vísi í fyrra­dag að til­tölu­lega fáir úr hópi líf­eyr­is­þega muni geta nýtt sér þetta úrræði, sem á sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu að kosta um 540 millj­ónir króna á ári. 

Auglýsing
Ef for­sendur fjár­laga ganga út frá því að allir sem nýttu sér frí­tekju­markið myndu gera það að fullu þá myndi það þýða að 5.400 manns myndu skipta þeirri upp­hæð á milli sín. Til sam­an­burðar mun áfram­hald­andi nið­ur­fell­ing á gistin­átta­gjaldi kosta rík­is­sjóð um 860 millj­ónir króna á næsta ári og yfir einn millj­arð króna á árinu 2023. 

Í band­orms­frum­varpi sem lagt hefur verið fram sam­hliða fjár­laga­frum­varpi, til að tryggja þær breyt­ingar á lögum sem nauð­syn­legar eru til að tryggja virkni þess, er ákvörð­unin um tvö­földum frí­tekju­marks­ins rök­studd. 

Þar segir að óum­deilt sé að áfram­hald­andi vinna eftir að elli­líf­eyr­is­aldri er náð eykur mögu­leika aldr­aðra til að bæta kjör sín, einkum þeirra sem lægstar hafa tekj­urn­ar. Þá hafa rann­sóknir sýnt fram á að vinna og virkni á efri árum stuðlar að betri heilsu, dregur úr ein­angrun og hefur almennt mikið félags­legt gildi fyrir eldri borg­ara.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent