Það þarf að kjósa aftur um hver verður forseti FIFA þar sem hvorugur frambjóðandinn til embættisins fékk 2/3 hluta atkvæða í kosningunni sem fór fram í dag. Í síðari kosningunni mun nægja að fá meirihluta atkvæða til að vinna. Í framboði voru, og eru, Sepp Blatter, hinn 79 ára gamli sitjandi forseti FIFA, og jórdanski prinsinn Ali bin al Hussein. Blatter fékk 133 atkvæði en al-Hussein 73.
Í miðvikudag voru níu háttsettir menn innan FIFA handteknir og ákærðir í Bandaríkjunum fyrir mútuþægni, peningaþvætti og fleira. Síðan þá hafa öll spjót staðið að Blatter, sem hefur neitað að draga framboð sitt til baka þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um það. Mikill meirihluta evrópskra knattspyrnusambanda, þar á meðal KSÍ, höfðu lýst því yfir að þau ætluðu ekki að kjósa Blatter. Michel Platini, forseti knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, sagði á blaðamannafundi í gær að nóg væri komið. „Fólk vill ekki Sepp Blatter lengur og ég vil hann ekki lengur heldur. Ég hef alltaf sagt að við viljum að FIFA sé sterkt en FIFA er ekki sterkt lengur. Ég er enn að reyna að sannfæra nokkur evrópsk knattspyrnusambönd sem eru ekki alveg sannfærð."