Þekkt á Íslandi að Ólafi M. Magnússyni sé ekki vel við Framsóknarmenn

15003216120-c28ef99ddf-z.jpg
Auglýsing

Þor­steinn Guðna­son aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður DV kveðst ekki hafa talað við full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins, hvorki Hrólf Ölv­is­son fram­kvæmda­stjóra flokks­ins, né annan um við­skipti með hluta­bréf í DV eða önn­ur. Þá full­yrðir hann að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi ekki sýnt neinn áhuga á við­skiptum með hluta­bréf í Útgáfu­fé­lagi DV.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Þor­steinn sendi Kjarn­anum nú rétt í þessu, í til­efni af ummælum Ólafs M. Magn­ús­sonar í Kjarn­anum í dag um að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum hafi viljað eign­ast DV.

Yfir­lýs­ing Þor­steins í heild sinni



Í frétta­til­kynn­ingu frá 8. októ­ber, sem var inn­gangur að ráðn­ingu nýs fram­kvæmda­stjora, og kall­aði á sér­stakan starfs­manna­fund 9. októ­ber til útskýr­ing­ar, sagði meðal ann­ars:

"Ein­kenni íslensks fjöl­miðla­mark­aðar eru þrír stórir aðilar og fjöldi minni rekstr­ar­að­ila. Margir hinna minni hafa um langt skeið átt við erf­ið­leika og óhag­kvæmni að etja sökum smæðar og þurfa meiri umsvif til að ná trygg­ari afkomu. DV ehf. fellur undir hóp minni aðil­anna.

Auglýsing

DV ehf. getur stækkað innan frá og/eða með yfir­töku eða sam­ein­ingu við önnur félög á fjöl­miðla­mark­aðn­um. Senni­lega mun hvoru tveggja ger­ast. Til að renna enn styrk­ari stoðum undir félagið hafa for­svars­menn þess átt í við­ræðum við aðra fjöl­miðla um sam­starf eða við­skipti. Vinna við stefnu­mótun mun m.a. leiða í ljós með hvaða hætti slíkt sam­starf eða við­skipti bera að. Mun frekar verða greint frá þessu á næstu dög­um, auk þess sem frek­ari skipu­lags­breyt­ingar eru fyr­ir­hug­aðar í ljósi manna­breyt­inga sem urðu nýverið innan fyr­ir­tæk­is­ins."

Svo mörg voru þau orð. Eftir þessu hefur verið unnið síð­ustu daga og vik­ur. Nýr fram­kvæmda­stjóri hefur verið ráð­inn, aug­lýs­inga­sala hefur tekið kipp og áskrif­endum er tekið að fjölga.

Það er þekkt á Íslandi að Ólafi M Magn­ús­syni er ekki vel við fram­sókn­ar­menn, og sér­stak­lega ekki kaup­fé­lags­stjór­ann á Sauð­ár­króki. Ég frá­bið mér að DV sé ein­hver leiksoppur í því mjólk­ur­stríði, sem kemur blað­inu ekk­ert við.

Ég hef ekki talað við full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins, hvorki þann sem Ólafur M. bendir á, né nokkurn annan um við­skipti með hluta­bréf í DV eða önn­ur. Sá flokkur hefur ekki sýnt neinn áhuga á við­skiptum með hluta­bréf i Útgáfu­fé­lagi DV.

Ég hef hins vegar átt form­leg og óform­leg sam­töl við full­trúa nokk­urra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja á Íslandi um sam­starf, sölu eða kaup í huga. Ég vona að þau mál skýrist á allra næstu dög­um. Jafn­framt verður upp­lýs­ingum um þau mál komið til réttra aðila, Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og Fjöl­miðla­nefnd­ar.

Ég hef reynt að upp­lýsa starfs­menn um það sem eig­endur eru að gera hverju sinni án mála­leng­inga, og mun halda því áfram.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None