Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins vill kynningu á sóttvarnaaðgerðum í velferðarnefnd

Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins nema ráðherrarnir fimm og forseti Alþingis hafa lagt fram frumvarp sem felur í sér að heilbrigðisráðherra skuli kynna breyttar sóttvarnaráðstafanir fyrir velferðarnefnd áður en þær eru kynntar almenningi.

Bryndís Haraldsdóttur hér fyrir miðju ásamt þeim Vilhjálmi Árnasyni og Ásmundi Friðrikssyni. Öll eru þau á meðal flutningsmanna frumvarpsins.
Bryndís Haraldsdóttur hér fyrir miðju ásamt þeim Vilhjálmi Árnasyni og Ásmundi Friðrikssyni. Öll eru þau á meðal flutningsmanna frumvarpsins.
Auglýsing

Ell­efu þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem ekki eru ráð­herrar hafa í sam­ein­ingu lagt fram frum­varp til breyt­inga á sótt­varna­lögum, sem felur í sér að heil­brigð­is­ráð­herra þurfi að kynna ákvörðun um breyttar sótt­varna­ráð­staf­anir í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis áður en þær taki gildi, eða eins fljótt og hægt sé.

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Bryn­dís Har­alds­dótt­ir, en í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að það verði að telj­ast „eðli­legt og í sam­ræmi við lýð­ræð­is­leg sjón­ar­mið að ákvarð­anir um setn­ingu sótt­varna­reglna séu kynntar Alþingi á ein­hvern hátt“ og mik­il­vægt sé að „fram­kvæmd­ar­vald­inu sé veitt aðhald við jafn veiga­miklar ákvarð­anir og sótt­varna­ráð­staf­an­ir“ sem oft tak­marki stjórn­ar­skrár­varin rétt­indi borg­ar­anna.

Þessar breyt­ingar sem þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins leggur til fela ekki í sér neina beina aðkomu Alþingis að ákvarð­ana­töku um sótt­varna­ráð­staf­an­ir, en þær myndu sem áður segir skylda Willum Þór Þórs­syni heil­brigð­is­ráð­herra að kynna þær fyrir vel­ferð­ar­nefnd áður en þær eru kynntar öllum almenn­ingi.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að í nágranna­löndum Íslands hafi þjóð­þing almennt aðkomu að ákvörð­unum um sótt­varna­ráð­staf­an­ir, „t.a.m. í Nor­egi þar sem 1/3 hluti þing­manna getur fellt reglu­gerð­ar­á­kvæði um sótt­varna­ráð­staf­anir og í Dan­mörku þar sem sótt­varna­ráð­staf­anir þurfa að vera sam­þykktar af meiri hluta sér­stakrar þing­nefnd­ar.“

Auglýsing

Svo segir frá því að í Bret­landi sé málum þannig háttað að upp­lýs­inga­gjöf um sótt­varna­ráð­staf­anir sam­kvæmt kór­ónu­veiru­lögum lands­ins sé tíð og ítar­leg, auk þess sem lögin eru tíma­bundin og hafi því þingið bæði til­efni og tæki­færi til að end­ur­meta þau og fram­kvæmd þeirra reglu­lega.

Þrátt fyrir að laga­breyt­ing­arnar sem sjálf­stæð­is­menn leggja til geri ekki kröfu um að vel­ferð­ar­nefnd hafi nokkuð ákvörð­un­ar­vald um þær sótt­varna­ráð­staf­anir sem lagðar eru til af ráð­herra og sótt­varna­lækni yrði umrædd breyt­ing „engu að síður til hags­bóta þar sem ráð­herra yrði gert skylt að kynna sótt­varna­ráð­staf­anir fyrir vel­ferð­ar­nefnd og færa þar knýj­andi rök fyrir nauð­syn þeirra,“ sam­kvæmt því sem segir í grein­ar­gerð með frum­varpi þing­flokks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent