FÍB segir Sjóvá hafa rift samningi í hefndarskyni

Félag íslenskra bifreiðaeiganda telur Sjóvá hafa rift samningi um vegaaðstoð í hefndarskyni eftir að FÍB gagnrýndi tryggingafélagið fyrir fimm milljarða króna greiðslur til hluthafa.

„Ekki er hægt að álykta annað en að stjórnendur Sjóvár hafi sagt viðskiptunum upp til að refsa FÍB fyrir gagnrýni á fimm milljarða króna greiðslur til hluthafa tryggingafélagsins,“ segir í tilkynningu FÍB.
„Ekki er hægt að álykta annað en að stjórnendur Sjóvár hafi sagt viðskiptunum upp til að refsa FÍB fyrir gagnrýni á fimm milljarða króna greiðslur til hluthafa tryggingafélagsins,“ segir í tilkynningu FÍB.
Auglýsing

FÍB-að­stoð, vega­þjón­usta sem stendur félags­mönnum í Félagi íslenskra bif­reiða­eig­enda (FÍB) til boða alla daga árs­ins, hefur ann­ast Vega­að­stoð Sjó­vár síðan 2007. Í til­kynn­ingu FÍB vegna upp­sagn­ar­innar segir að engar skýr­ingar hafi fylgt fyr­ir­vara­lausri upp­sögn­inni. „Ekki er hægt að álykta annað en að stjórn­endur Sjó­vár hafi sagt við­skipt­unum upp til að refsa FÍB fyrir gagn­rýni á fimm millj­arða króna greiðslur til hlut­hafa trygg­inga­fé­lags­ins,“ segir í til­kynn­ingu FÍB.

Upp­sögnin barst í lok októ­ber, fjórum vikum eftir að FÍB birti áskorun til Sjó­vár um að skila ofteknum iðgjöldum til við­skipta­vina frekar en láta þau renna í vasa hlut­hafa. Sjóvá greiddi fasta upp­hæð mán­að­ar­lega til FÍB-að­stoðar fyrir að sjá um Vega­að­stoð fyrir félaga í Stofni.

Auglýsing

„Afar gott sam­starf hefur verið við starfs­fólk Sjó­vár um þessa þjón­ustu. Tíma­setn­ing upp­sagn­ar­innar sýnir ofur­við­kvæmni stjórn­enda Sjó­vár fyrir heil­brigðu aðhaldi hags­muna­sam­taka neyt­enda. Hvernig staðið var að upp­sögn­inni stað­festir þá ályktun FÍB. Í samn­ingnum eru ákvæði um að aðilar hans skuli leit­ast við að ná sam­komu­lagi ef þörf kref­ur. Ekk­ert slíkt var reynt af hálfu Sjó­vár, aðeins ein­föld upp­sögn á almennt net­fang FÍB,“ segir í til­kynn­ingu FÍB, þar sem einnig kemur fram að þrátt fyrir að félagið hafi í ára­tugi gagn­rýnt óeðli­lega há iðgjöld öku­tækja­trygg­inga og sam­keppn­is­skort á trygg­inga­mark­aðnum hafi það ekki truflað sam­starfið um vega­að­stoð­ina, enda um óskyld verk­efni að ræða.

FÍB gagn­rýndi áform um fimm millj­arða króna hlut­hafagreiðslur

Í umræddri áskorun FÍB til Sjó­vár, sem send var 29. sept­em­ber, sagði meðal ann­ars:

„Sjóvá hefur kynnt áform um að greiða hlut­höfum 2,5 millj­arða króna í tengslum við hluta­fjár­lækkun félags­ins. Þessi fjár­hæð kemur til við­bótar við 2,65 millj­arða króna arð­greiðslu árs­ins. Sam­tals ætlar Sjóvá því að greiða hlut­höfum rúm­lega 5 millj­arða króna. Ástæðu greiðsl­unnar til hlut­hafa segir Sjóvá vera þá að geta félags­ins til að greiða tjón sé „fyrir ofan efri mörk við­miða.“ Það er vægt til orða tek­ið. Sjóvá liggur á gríð­ar­legum fjár­munum sem félagið hefur sankað að sér með ofteknum iðgjöld­um, ekki síst af bíla­trygg­ing­um. Hlut­hafar Sjóvá eiga ekki þessi „efri mörk við­miða“, heldur trygg­inga­tak­ar. Með réttu á Sjóvá að skila þessum 2,5 millj­örðum króna til við­skipta­vina sinna.“

FÍB skor­aði í kjöl­farið á stjórn Sjóvá að leggja til við hlut­hafa­fund félags­ins að hluta­fjár­lækk­unin gangi til við­skipta­vina. Stjórn Sjó­vár varð ekki við þeirri áskor­un. Á hlut­hafa­fundi Sjóvá 19. októ­ber var sam­þykkt að greiða hlut­höfum félags­ins 2,5 millj­arða króna til að „laga fjár­magns­skipan félags­ins“ eins og segir í fund­ar­gerð­inni. „Á mæltu máli þýddi þetta orða­lag að Sjóvá hafði safnað mun meiri fjár­munum í sjóði sína en þurfti til að standa undir trygg­inga­starf­sem­inni. FÍB taldi aftur á móti eðli­legra að skila þessum ofteknu fjár­munum til við­skipta­vina félags­ins,“ segir í til­kynn­ingu FÍB.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent