Sex þingmenn Framsóknarflokksins hafa lagt fram frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, þess efnis að ÁTVR fái að hafa opið á sunnudögum, sumardaginn fyrsta, 1. maí, 17. júní og fyrsta mánudaginn í ágúst, sem er frídagur verslunarmanna.
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, en auk hennar eru þau Ágúst Bjarni Garðarsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Þórarinn Ingi Pétursson á lista yfir flutningsmenn.
Með frumvarpinu yrði felld á brott málsgrein úr 12. grein áfengislaga, sem í dag kveður á um að áfengisútsölustaðir skuli lokaðir á helgidögum þjóðkirkjunnar auk þeirra daga sem áður hafa verið tilgreindir.
Samræmist ekki tíðarandanum
Í greinargerð með frumvarpinu segir að bann af þessu tagi við „opnunartíma staða sem selja áfengi samræmist ekki tíðaranda samfélagsins“ og að breytingin stuðli að „frelsi til að veita og sækja þjónustu á framangreindum dögum.“
„Með tilkomu nýrra áfengisverslana, sérstaklega netverslana, er talið að veita þurfi áfengisútsölustöðum rýmri heimildir til að bregðast við tilkomu nýrra verslunarhátta. Frumvarp þetta gerir t.d. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins auðveldara að opna dyr sínar fyrir neytendum þegar þeim hentar best,“ segir einnig í greinargerðinni með frumvarpinu.
Þar segir ennfremur að flutningsmenn telji eðlilegt að áfengisútsölustaðir hafi rétt til að ákveða opnunartíma án þess að það sé skilyrt í lögum og tekið er fram að hér sér einungis um að ræða heimild, en enga skyldu, til þess að hafa opið. Bent er á að opnunartími ríkisrekinna áfengisverslana á Norðurlöndunum sé almennt ákveðinn með öðrum hætti en lagasetningu og að stjórnir, reglugerðir og ákvarðanir ráðuneyta ráði för við slíka ákvarðanatöku.
„Slíkt veitir þeim verslunum rýmra frelsi til að ráða sínum opnunartíma og breyta honum ef ástæða er talin vera til þess. Sem dæmi má nefna að í Svíþjóð er opnunartími hjá Systembolaget ákveðinn af stjórn félagsins og í Finnlandi er opnunartími Alko ákveðinn með reglugerð ráðherra,“ segir í greinargerð með frumvarpi þingmannanna.
Opnunarbönn geti þýtt að fólk sæki í varasamt vín
Þar segir einnig að opnunarbann á þessum dagsetningum kunni að „leiða til þess að einstaklingar leiti annarra leiða til að nálgast vörurnar á þeim tíma“ og að þær leiðir geti meðal annars vegið „áfengiskaup af aðilum sem framleiða og selja áfengi án tilskilinna leyfa og í bága við lög og reglur. Því er bætt við að „ákveðin áhætta“ geti falist í vörum sem keyptar eru á þann hátt, þar sem þær séu ekki framleiddar í samræmi við reglur og viðurkennda staðla.
„Einnig eru slíkar vörur almennt sterkari, þ.e. innihalda meira magn af vínanda, og geta verið skaðlegar heilsu fólks,“ segir sömuleiðis í greinargerðinni.
Flutningsmenn segjast telja frumvarpið „til þess fallið að áfengi verði áfram selt í öruggu umhverfi þar sem eftirlit er með aldurstakmörkum og stuðlað að forvörnum“ og láta það fylgja að mikilvægt sé að „blása til stórsóknar í forvörnum meðal annars með því að auka það fjármagn sem eyrnamerkt er forvörnum og setja upp áætlun sem endurmetin verði með reglubundnum hætti.“