Þingmenn Framsóknar vilja að ÁTVR fái heimild til að hafa opið á sunnudögum

Sex þingmenn Framsóknarflokksins hafa lagt fram frumvarp þess efnis að áfengisútsölustöðum verði heimilt að hafa opið á helgidögum þjóðkirkjunnar. Þau telja það ekki samræmast tíðarandanum að útsölustöðum sé bannað með lögum að hafa opið.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Auglýsing

Sex þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa lagt fram frum­varp til laga um breyt­ingu á áfeng­is­lögum, þess efnis að ÁTVR fái að hafa opið á sunnu­dög­um, sum­ar­dag­inn fyrsta, 1. maí, 17. júní og fyrsta mánu­dag­inn í ágúst, sem er frí­dagur versl­un­ar­manna.

Haf­dís Hrönn Haf­steins­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, en auk hennar eru þau Ágúst Bjarni Garð­ars­son, Jóhann Frið­rik Frið­riks­son, Lilja Rann­veig Sig­ur­geirs­dótt­ir, Stefán Vagn Stef­áns­son og Þór­ar­inn Ingi Pét­urs­son á lista yfir flutn­ings­menn.

Með frum­varp­inu yrði felld á brott máls­grein úr 12. grein áfeng­is­laga, sem í dag kveður á um að áfeng­is­út­sölu­staðir skuli lok­aðir á helgi­dögum þjóð­kirkj­unnar auk þeirra daga sem áður hafa verið til­greind­ir.

Sam­ræm­ist ekki tíð­ar­and­anum

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að bann af þessu tagi við „opn­un­ar­tíma staða sem selja áfengi sam­ræm­ist ekki tíð­ar­anda sam­fé­lags­ins“ og að breyt­ingin stuðli að „frelsi til að veita og sækja þjón­ustu á fram­an­greindum dög­um.“

„Með til­komu nýrra áfeng­is­versl­ana, sér­stak­lega net­versl­ana, er talið að veita þurfi áfeng­is­út­sölu­stöðum rýmri heim­ildir til að bregð­ast við til­komu nýrra versl­un­ar­hátta. Frum­varp þetta gerir t.d. Áfeng­is- og tóbaks­verslun rík­is­ins auð­veld­ara að opna dyr sínar fyrir neyt­endum þegar þeim hentar best,“ segir einnig í grein­ar­gerð­inni með frum­varp­inu.

Auglýsing

Þar segir enn­fremur að flutn­ings­menn telji eðli­legt að áfeng­is­út­sölu­staðir hafi rétt til að ákveða opn­un­ar­tíma án þess að það sé skil­yrt í lögum og tekið er fram að hér sér ein­ungis um að ræða heim­ild, en enga skyldu, til þess að hafa opið. Bent er á að opn­un­ar­tími rík­is­rek­inna áfeng­is­versl­ana á Norð­ur­lönd­unum sé almennt ákveð­inn með öðrum hætti en laga­setn­ingu og að stjórn­ir, reglu­gerðir og ákvarð­anir ráðu­neyta ráði för við slíka ákvarð­ana­töku.

„Slíkt veitir þeim versl­unum rýmra frelsi til að ráða sínum opn­un­ar­tíma og breyta honum ef ástæða er talin vera til þess. Sem dæmi má nefna að í Sví­þjóð er opn­un­ar­tími hjá System­bolaget ákveð­inn af stjórn félags­ins og í Finn­landi er opn­un­ar­tími Alko ákveð­inn með reglu­gerð ráð­herra,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varpi þing­mann­anna.

Opn­un­ar­bönn geti þýtt að fólk sæki í vara­samt vín

Þar segir einnig að opn­un­ar­bann á þessum dag­setn­ingum kunni að „leiða til þess að ein­stak­lingar leiti ann­arra leiða til að nálg­ast vör­urnar á þeim tíma“ og að þær leiðir geti meðal ann­ars vegið „áfeng­is­kaup af aðilum sem fram­leiða og selja áfengi án til­skil­inna leyfa og í bága við lög og regl­ur. Því er bætt við að „ákveðin áhætta“ geti falist í vörum sem keyptar eru á þann hátt, þar sem þær séu ekki fram­leiddar í sam­ræmi við reglur og við­ur­kennda staðla.

„Einnig eru slíkar vörur almennt sterk­ari, þ.e. inni­halda meira magn af vín­anda, og geta verið skað­legar heilsu fólks,“ segir sömu­leiðis í grein­ar­gerð­inni.

Flutn­ings­menn segj­ast telja frum­varpið „til þess fallið að áfengi verði áfram selt í öruggu umhverfi þar sem eft­ir­lit er með ald­urs­tak­mörkum og stuðlað að for­vörn­um“ og láta það fylgja að mik­il­vægt sé að „blása til stór­sóknar í for­vörnum meðal ann­ars með því að auka það fjár­magn sem eyrna­merkt er for­vörnum og setja upp áætlun sem end­ur­metin verði með reglu­bundnum hætt­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent