Þingmenn ræddu „fullkomnlega galið“ húsnæðiskerfi á Alþingi

Screen-Shot-2015-05-20-at-19.00.14.png
Auglýsing

Hús­næð­is­kerfið á Íslandi er full­komn­lega galið, sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í umræðum um hús­næð­is­mál í þing­inu í dag. Settar hafi verið gríð­ar­legar fjár­hæðir í það að hvetja fólk til að skulda í stað þess að hjálpa því að eign­ast og spara. Íbúða­lána­sjóður hefði fengið 55 þús­und millj­ón­ir, og fólk vildi ekki eiga við­skipti við hann.

Hús­næð­is­mál voru rædd í sér­stakri umræðu í þing­inu nú seinni part­inn, en upp­haf­lega átti umræðan að fara fram klukkan 10:30 í morg­un. Umræð­unni seink­aði hins vegar vegna langra umræðna um ramma­á­ætlun undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta.

Það var Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sem var máls­hefj­andi í umræð­unni. Hann fór um víðan völl, eins og reyndar margir þing­menn gerðu, og ræddi ástandið bæði á leigu­mark­aði og hjá þeim sem eiga eða vilja eiga hús­næði. „Það er orðið brýnt að sjá aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í öllum þessum mál­u­m.“ sagði hann í ræðu sinni. Það væri aðkallandi að fá svör frá rík­is­stjórn­inni um það hvað eigi að gera til að bæta stöð­una.

Auglýsing

Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, fór yfir það í ræðu sinni hvað hún hefði lagt áherslu á í vinnu ráðu­neyt­is­ins og við vinnu verk­efn­is­stjórnar um breytta skipan hús­næð­is­mála. Hún sagði vinn­una sem teng­ist til­lögum verk­efna­stjórn­ar­innar verði unnin í áföngum og þau fjögur frum­vörp sem unnið hafi verið að í vetur séu fyrsti áfang­inn. Fyrstu tvö frum­vörpin eru komin inn í þingið en Eygló sagði að hin tvö væru á „loka­stig­um“. Eins og greint hefur verið frá eru félags­mála­ráðu­neytið og fjár­mála­ráðu­neytið ekki sam­mála um þau frum­vörp og það hvort þau komi fram.

Þing­menn sem tóku til máls voru flestir sam­mála um að aðgerða sé þörf í hús­næð­is­mál­um. Katrín Jak­obs­dóttir sagði hús­næð­is­mál vera þau mál sem beðið væri eftir og það sem almenn­ingur í land­inu kalli eft­ir. Hins vegar muni þau frum­vörp sem Eygló hefur komið inn í þingið ekki þau mál sem muni leysa vand­ann.

Færð hvergi hús­næði fyrir 100 þús­und



Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­maður Pírata, gagn­rýndi þau við­mið sem væru höfð til hlið­sjónar í útreikn­ingum á hús­næð­is­bót­um. „Ég verð bara að upp­lýsa hæst­virtan ráð­herra um það að þú færð hvergi hús­næði í Reykja­vík fyrir 100 þús­und krón­ur, ef þú ætlar að vera með meira en eitt her­bergi. Og það er jafn­vel ekki hægt að fá stúd­íó­í­búðir á því verði fyrir ein­stak­linga.“ sagði Birgitta. Við­mið þyrftu að vera í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann. „Þessi töl­fræði hefði kannski átt við árið 2005.“

Flokks­bróðir henn­ar, Jón Þór Ólafs­son, gerði strangar bygg­ing­ar­reglu­gerðir að umtals­efni. „Sjálfur myndi ég helst vilja lóða saman tvo gáma,“ sagði hann um drauma­hí­býli sín. Bygg­ing­ar­reglu­gerðir gerðu það hins vegar ómögu­legt.

Bryn­hildur Pét­urs­dótt­ir, þing­kona Bjartrar fram­tíð­ar, hvatti Eygló til dáða og sagð­ist lít­ast vel á þær hug­myndir sem hún hefði heyrt. Hún gerði þó vaxta­stig lána að umtals­efni, meðal ann­ars væri það hærra en það þyrfti að vera vegna þess að hér væri not­ast við krónu. „Við erum að borga ein­hverja 8 millj­arða á árinu í ár í vaxta­bætur og mér finnst það svo­lítið skrýtið að ríkið og skatt­greið­endur séu að borga fólki bætur vegna vaxta­kostn­aðar sem er svo hár í stað­inn fyrir að ræða það þá kannski að taka upp annan gjald­miðil og lækka vaxta­kostn­að­inn. Þetta er í raun­inni svo­lítið brenglað milli­færslu­kerfi ef út í það er far­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None