Þórdís Lóa segir ekki ólíklegt að Viðreisn og Framsókn séu að fara að vinna saman

Oddviti Viðreisnar segir Samfylkingu, Pírata og Viðreisn eiga málefnalega samleið í mikilvægum málaflokkum og að Framsókn virðist standa nærri þeim. Það sé þó ljóst að gamli meirihlutinn sé fallinn og að næstu skref séu að mynda nýjan.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar.
Auglýsing

Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, odd­viti og eini borg­ar­full­trúi Við­reisnar í Reykja­vík, segir að það sé ekki ólík­legt að Við­reisn og Fram­sókn­ar­flokkur séu að fara að vinna saman í borg­inni, þótt aðrir leikir séu vissu­lega í stöð­unn­i. 

Hún segir ljóst að gamli meiri­hlut­inn, sem Við­reisn var hluti af, sé fall­inn og að næstu skref séu að mynda nýjan meiri­hluta. „Í þessum fyrstu skrefum munum við standa sam­an; Við­reisn, Sam­fylk­ing og Pírat­ar. Við vitum að mál­efna­lega eigum við sam­leið í mik­il­vægum mála­flokkum sem snúa að fram­tíð borg­ar­inn­ar; í skipu­lags­mál­um, sam­göngu­málum og staf­rænu upp­bygg­ing­unni. Þetta eru allt saman mála­flokkar þar sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist standa nærri okk­ur, sé mið tekið af kosn­inga­lof­orð­um. En slíkur meiri­hluti yrði annar meiri­hluti en sá sem er nú að líða undir lok. Það er alveg aug­ljóst.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Face­book sem hún birti í dag. 

Tap­aði manni og fylgi en er í lyk­il­stöðu

Við­reisn fékk 5,2 pró­sent atkvæða á laug­ar­dag í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík og tap­aði þremur pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ing­um. Það varð til þess að flokk­ur­inn tap­aði öðrum borg­ar­full­trúa sín­um. Flokk­ur­inn er ákveð­inni lyk­il­stöðu þar sem stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, getur ekki myndað meiri­hluta án Við­reisnar í ljósi þess að Pírat­ar, Sós­í­alista­flokkur Íslands og Sam­fylk­ing hafa úti­lokað sam­starf við hann og Vinstri græn ætla að vera í minni­hluta eftir að hafa fengið fjögur pró­sent atkvæða.

Auglýsing
Haldi þessi staða er eina leið Sjálf­stæð­is­flokks til að mynda meiri­hluta að ná með sér Fram­sókn, Við­reisn og Flokki fólks­ins. Við­reisn á líka mögu­leika að mynda sterkan 13 manna meiri­hluta með Sam­fylk­ingu, Pírötum og Fram­sókn­ar­flokki og þeir tveir fyrr­nefndu virð­ast horfa mun frekar til Við­reisnar sem sam­starfs­flokks en Sós­í­alista­flokks Íslands, sem fékk tvo borg­ar­full­trúa kjörna.

Eng­inn einn borg­ar­stjóri ræður Reykja­vík næstu árin

Þór­dís Lóa segir í stöðu­upp­færsl­unni að Við­reisn sé aftur komið í það hlut­verk að aðrir flokkar vilja vinna með þeim í Reykja­vík, hvoru megin miðju sem þeir standa, nema einna helst Sós­í­alista­flokk­ur­inn sem Við­reisn treysti sér þó alveg til að vinna með. „Þessi staða kemur ekki af sjálfu sér, heldur vegna þess að Við­reisn getur unnið bæði til hægri og vinstri og við sýndum það á síð­asta kjör­tíma­bili. Við vorum í meiri­hluta með Sam­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri græn­um. En við unnum líka náið með Sjálf­stæð­is­flokknum að ýmsum verk­efn­um, t.a.m. að nýrri eig­enda­stefnu borg­ar­innar og atvinnu- og nýsköp­un­ar­stefn­u.“

Hún seg­ist hafa átt gott kaffi­spjall við Einar Þor­steins­son, odd­vita Fram­sóknar sem fékk fjóra menn kjörna um liðna helgi, þar sem þau fóru yfir málin og hvar flokk­arnir tveir standa. „Af þeim meiri­hluta­mögu­leikum sem eru uppi er ekki ólík­legt að Við­reisn og Fram­sókn séu að fara að vinna sam­an, þó aðrir leikir séu vissu­lega í stöð­unni. Hver sem nið­ur­staðan verður í þessum blikk­leik, þá skiptir það mestu að kom­ast að nið­ur­stöðu um mál­efna­samn­ing sem bindur næsta meiri­hluta sam­an. Það eru mál­efnin sem eiga að ráða för en ekki stól­arn­ir.“

Hún segir að eng­inn einn borg­ar­stjóri muni ráða í Reykja­vík næstu árin. „Þannig var það ekki á síð­asta kjör­tíma­bili og þannig verður það ekki á því næsta. Hver meiri­hluti er sam­starf ólíkra flokka, þar sem sjón­ar­mið allra kom­ast að.“

Við í Við­reisn erum aftur komin í það hlut­verk að aðrir flokkar vilja vinna með okkur í Reykja­vík, hvoru megin miðju sem...

Posted by Þór­dís Lóa on Wed­nes­day, May 18, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent