Þórdís Lóa sigraði í fyrsta prófkjöri Viðreisnar – Þórdís Jóna hafnaði í 3. sæti

Niðurstöður í fyrsta prófkjöri Viðreisnar liggja fyrir. Sitjandi borgarfulltrúar höfnuðu í tveimur efstu sætunum en Þórdís Jóna Sigurðardóttir, sem sóttist eftir að leiða flokkinn, varð í þriðja sæti.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir sigraði í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn heldur prófkjör.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir sigraði í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn heldur prófkjör.
Auglýsing

Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík, sigr­aði í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík. Nafna henn­ar, Þór­dís Jóna Sig­urð­ar­dótt­ir, sem einnig sótt­ist eftir að leiða flokk­inn, hafn­aði í þriðja sæti.

Sjö voru í fram­boði í þessu fyrsta próf­kjöri Við­reisnar og kosið var um fjögur efstu sætin á lista flokks­ins. Próf­kjörið hófst í gær og lauk síð­degis í dag. 1.939 voru á kjör­skrá en eins og Kjarn­inn greindi frá í vik­unni hefur flokks­­fé­lögum í Reykja­vík einni og sér fjölgað um 600-700 manns í aðdrag­anda próf­­kjör­s­ins. Alls bár­ust 1.182 atkvæði og kjör­sókn var því 60,9 pró­sent. Fjögur atkvæði voru auð en ekk­ert ógilt.

Auglýsing

Þór­dís Lóa hlaut 575 atkvæði í 1. sæti. Pawel Bar­toszek borg­ar­full­trúi hafn­aði í 2. sæti með 799 atkvæði í 1.-2. sæti. Þór­dís Jóna varð í 3. sæti með 646 atkvæði í 1.-3. sæti. Vara­borg­ar­full­trú­inn Diljá Ámunda­dóttir Zoega hafn­aði í 4. sæti með 885 atkvæði í 1.-4. sæti en hún sótt­ist eftir þriðja sæti.

Pawel gaf einn kost á sér í 2. sæti en auk Diljár sótt­ist Geir Finns­son um þriðja sæti list­ans. Þá ósk­uðu Erlingur Sig­­valda­­son og Anna Kristín Jens­dóttir eftir stuðn­­ingi í 3.-4. sæti á fram­­boðs­lista flokks­ins.

Þór­dís Lóa Þórhallsdóttir og Pawel Bar­toszek, borg­ar­full­trúar Viðreisnar, höfnuðu í 1. og 2. sæti í fyrsta prófkjöri flokksins.

Upp­still­ing­ar­nefnd mun stilla upp lista í sam­ræmi við reglur

Úrslit próf­kjörs­ins hafa verið afhent upp­still­ing­ar­nefnd sem síðan mun stilla upp lista í sam­ræmi við reglur Við­reisn­ar, til að mynda varð­andi kynja­hlut­föll.

Við­reisn bauð fyrst fram til sveit­­ar­­stjórna árið 2018 og fékk þá 8,2 pró­­sent atkvæða í Reykja­vík­­­ur­­borg og tvo borg­­ar­­full­­trúa kjörna. Í kjöl­farið mynd­aði flokk­­ur­inn meiri­hluta ásamt Sam­­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri græn­­um.

Sam­­kvæmt könn­un­ um fylgi flokka í Reykja­vík, sem Mask­ína fram­­kvæmdi í lok jan­úar og byrjun febr­­ú­­ar, mæld­ist Við­reisn ögn undir kjör­­fylgi sínu og var eini flokk­­ur­inn í núver­andi meiri­hluta sem það gerði. Flokk­­ur­inn mæld­ist nánar til tekið með 5,9 pró­­senta fylgi í könnun Mask­ínu, sem myndi þýða að hann fengi ein­ungis einn borg­­ar­­full­­trúa kjör­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki