Þorsteinn Már: Skipulagðar ofsóknir sem spilltu orðspori um allan heim

--orsteinnmar.jpg
Auglýsing

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og einn stærsti eig­andi Sam­herja, segir nið­ur­stöðu sér­staks sak­sókn­ara, um að fella niður mál á hendur honum og öðrum starfs­mönnum Sam­herja, vera gleði­efni og sýna glögg­lega að fyr­ir­tækið og starfs­menn þess hafi farið að lögum og sinnt störfum af heil­ind­um. Seðla­bank­inn hafi farið fram með til­hæfu­lausar ásak­anir og að „of­forsi“ ruðst inn á skrif­stofur Sam­herja í hús­leit­ar­til­gangi, í mars 2012, án þess að hafa nokkuð í hönd­unum sem studdi þær aðgerðir eða ásak­anir um lög­brot yfir höf­uð.

Þetta kemur fram í ítar­legu bréfi Þor­steins Más til starfs­manna Sam­herja sem birt hefur verið á vef félags­ins. Í bréf­inu rekur Þor­steinn Már máls­at­vik, hvernig það þró­að­ist á rann­sókn­ar­tíma og á hverju ákvörðun sér­staks sak­sókn­ara bygg­ir.

Í bréf­inu seg­ist Þor­steinn Már hafa þurft að svara fyrir verð­lagn­ingu á fimm tonnum af bleikju, á ríf­lega þriggja ára tíma­bili, sem að mati Seðla­bank­ans hafi verið of lágt. Bank­inn hafi mis­skilið og reiknað verðið út rang­lega, þar sem hann hafi ekki notað réttar for­sendur í skoðun sinni á mál­in­u. „­Sem dæmi um offorsið sat ég í yfir­heyrslu hjá sér­stökum sak­sókn­ara vegna kæru Seðla­bank­ans þar sem ég var ásak­aður um alvar­legt og gróft brot yfir langt tíma­bil sem fólst í að selja sam­tals 5 tonn af bleikju á 39 mán­aða tíma­bili, á verði sem var tveimur millj­ónum króna of lágt að mati Seðla­bank­ans. Þegar ég bað um gögn til rök­stuðn­ings kæru Seðla­bank­ans um verð ann­arra útflytj­enda á bleikju til Þýska­lands kom í ljós að engin slík gögn voru til þar sem eng­inn annar seldi bleikju til Þýska­lands á sama tíma­bili. Þess í stað sýndi starfs­maður sér­staks sak­sókn­ara mér skýrslu Seðla­bank­ans þar sem bank­inn bar saman verð á bleikju, sem við seldum til Finn­lands, við 5 tonnin sem seld voru til Þýska­lands. Til að fá sem nei­kvæð­asta nið­ur­stöðu úr þessum sam­an­burði varð Seðla­bank­inn að horfa fram­hjá gjör­ó­líkum afhend­ing­ar­skil­málum og mis­mun­andi mark­aðs­að­stæð­um. Í öðru til­fell­inu var búið að byggja upp markað og í hinu til­fell­inu var verið að reyna að búa til nýjan mark­að. Yfir­heyrslan fór fram tæpum tveimur árum eftir að stofnað var til máls­ins og nokkrum mán­uðum eftir að seðla­banka­stjóri til­kynnti mér í gegnum hádeg­is­fréttir fjöl­mið­ils að hann hefði kært mig til sér­staks sak­sókn­ara. [...] Eins og þetta ein­falda dæmi sýnir hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta mál eða leysa það fyrr. Í hvert sinn sem við fengum aðgang að gögnum máls­ins var unnt að sýna fram á að ásak­anir bank­ans voru ekki á rökum reist­ar. Þessi vinnu­brögð horfa þannig við mér að mark­miðið hafi fyrst og fremst verið að valda okkur skaða frekar en að sann­reyna ásak­anir um meint lög­brot. [...] Því miður stukku margir á vagn­inn með Seðla­bank­an­um. Hef ég oft þurft að horfa upp á að vegið sé á ósmekk­legan hátt að mann­orði mínu og ykkar starfs­manna á opin­berum vett­vangi. Ég hef oft sagt að tjónið sem af þessu hefur hlot­ist er gríð­ar­legt. Mér er ekki efst í huga fjár­hags­legt tjón heldur hvernig þessar skipu­lögðu ofsóknir hafa spillt orð­spori okkar um allan heim,“ segir meðal ann­ars í bréfi Þor­steins Más.

Auglýsing

Þá er marg­ít­rekuð sú nið­ur­staða sér­staks sak­sókn­ara í mál­inu að engin lög hafi verið brotin og að starfs­fólk Sam­herja hafi unnið heið­ar­lega að fram­gangi mála innan fyr­ir­tæk­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None