Þrír borgarstjórar á lista Samfylkingar fyrir komandi kosningar – Jón Gnarr í heiðurssæti

Fimm af sex efstu á lista Samfylkingarinnar eru sitjandi borgarfulltrúar. Á meðal annarra á listanum eru formaður félags eldri borgara og fyrrverandi formaður ÖBÍ.

Hluti frambjóðenda Samfylkingarinnar í komandi borgarstjórnarkosningum.
Hluti frambjóðenda Samfylkingarinnar í komandi borgarstjórnarkosningum.
Auglýsing

Sam­fylk­ingin sam­þykkti í fram­boðs­lista sinn fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í dag. Flokksvali lauk 13. febr­úar þar sem nið­­ur­­staðan fyrir sex efstu sætin var bind­andi fyrir upp­­still­ing­­ar­­nefnd, að teknu til­­liti til reglna Sam­­fylk­ing­­ar­innar um að ekki halli á hlut kvenna. 

Því lá fyrir að Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri myndi leiða list­ann, að Heiða Björg Hilm­is­dótt­ur, vara­for­maður flokks­ins, yrði í öðru sæt­inu og borg­ar­full­trú­inn Skúli Helga­son í því þriðja. Borg­ar­full­trú­arnir Sabine Leskopf og Hjálmar Sveins­son röð­uðu sér í tvö næstu sæti og eini nýlið­inn í efstu sex sæt­unum er Guðný Maja Riba kenn­ari.

Í næstu tveimur sæt­um, því sjö­unda og átt­unda, sitja svo Sara Björg Sig­urð­ar­dóttir stjórn­sýslu­fræð­ingur og Birkir Ingi­bjarts­son arki­tekt. Ellen Calmon, borg­ar­full­trúi og fyrr­ver­andi for­maður ÖBÍ, er í níunda sæt­inu.

Dagur segir í frétta­til­kynn­ingu að á list­anum sé fólk með mik­il­væga reynslu af fjöl­breyttum sviðum sam­fé­lags­ins, bæði fólk með reynslu af stjórn borg­ar­innar en líka ný og fersk and­lit sem fengur er að. „List­inn er sig­ur­strang­leg­ur, hann er þétt­skip­aður fólki úr öllum áttum sem elskar Reykja­vík og vill halda áfram að ­sækja fram og þróa borg­ina sem græna, fjöl­breytta borg með öfl­ugri þjón­ustu þar sem hugað er að vel­ferð og tæki­færum til fram­tíðar og ­plás­s er ­fyrir alla.“

Auglýsing
Samfylkingin er sem stendur með sjö borg­ar­full­trúa eftir að hafa fengið 25,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um. Í könnun sem Mask­ína gerði í febr­úar mæld­ist Sam­­fylk­ingin stærsti flokk­­ur­inn í borg­inni með 27,9 pró­­sent fylgi og sjö borg­­ar­­full­­trúa, rétt eins og í dag.

Ýmis athygl­is­verð nöfn er að finna á fram­boðs­list­anum í sætum sem eiga ekki sýni­lega mögu­leika á að skila við­kom­andi inn í borg­ar­stjórn. Þannig situr Helgi Pét­urs­son, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara, í ell­efta sæti list­ans. 

Jón Gnarr þegar hann var borgarstjóri í Reykjavík. Mynd: Birgir Þór Harðarson.

Í tveimur síð­ustu sætum list­ans, númer 45 og 46, sitja svo tveir fyrr­ver­andi borg­ar­stjór­ar, þau Ingi­björg Sól­rún Gísla­dóttir og Jón Gnarr. Um svokölluð heið­ur­sæti er að ræða. Vera Jóns á list­anum vekur athygli þar sem hann varð borg­ar­stjóri eftir hafa leitt Besta flokk­inn til mik­ils kosn­inga­sig­urs árið 2010. Jón starf­aði fyrir Sam­fylk­ing­una í aðdrag­anda þing­kosn­inga 2017 en hefur ekki áður verið á lista flokks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent