Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

trump.jpg
Auglýsing

Business Insider er eins og svo oft áður með yfir­ferð yfir heims­mál­in, og þær fréttir sem þeim þykja hvað merki­leg­astar í dag.



  1. Engin ró er komin á kín­verskan hluta­bréfa­markað þrátt fyrir að seðla­banki lands­ins hafi lækkað stýri­vexti í gær og sú lækkun hafi tekið gildi í dag.


  2. Hluta­bréf í Banda­ríkj­unum höfðu lækkað í lok dags í gær eftir miklar hækk­anir fyrr um dag­inn.


  3. Ungur maður frá Marokkó, sem var yfir­bug­aður í lest á leið til Par­ísar á dög­un­um, hefur verið ákærður fyrir morð­til­raun sem hluta af hryðju­verki.


  4. Búið er að grafa lengstu göng í heimi, eftir fimmtán ára vinnu. Göngin eru í Sviss og eiga að opna í júní næst­kom­andi. Þau eru rúm­lega 56 kíló­metra löng.


  5. Yfir 50 kaf­bátar frá Norð­ur­-Kóreu, eða um 70 pró­sent af flot­anum svo vitað sé, eru horfnir af rat­sjám Suð­ur­-Kóreu­manna, degi eftir að sam­komu­lag náð­ist milli ríkj­anna tveggja um vopna­hlé.


  6. Kjós­endur kusu í gær með því að ­banna bíla­þjón­ustur eins og Uber í Rio de Jan­eiro. Borg­ar­stjór­inn þarf að sam­þykkja þetta innan tveggja vikna svo að bannið verði að veru­leika.


  7. Mikil rign­ing og flóð sunnan af Sydney hafa orðið til þess að hund­ruð hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín.


  8. Don­ald Trump lét fjar­lægja frétta­mann hjá spænsku­mæl­andi fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Uni­vision af blaða­manna­fundi eftir að frétta­mað­ur­inn reyndi að spyrja hann um inn­flytj­enda­mál.


  9. Fjöldi Kól­umbíu­manna hefur farið frá Venes­ú­ela und­an­farið eftir að stjórn­völd þar hófu átak gegn inn­flytj­end­um. For­seti Venes­ú­ela hefur kennt Kól­umbíu­mönnum um glæpa­öldu og fátækt.


  10. Lest­ar­sam­göngur hafa kom­ist á á milli Banda­ríkj­anna og Mexíkó í fyrsta sinn í rúma öld. Lestin fer á milli borg­ar­innar Browns­ville í Texas og mexíkósku borg­ina Mata­moros.


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None