Tíu stærstu nöfnin sem misstu sæti sitt í bresku þingkosningunum

h_51896922-1.jpg
Auglýsing

Kosn­ing­arnar í Bret­landi í gær voru einar þær sögu­leg­ustu sem farið hafa fram í land­inu. Hinn óvænti hreini meiri­hluti Íhalds­manna og stór­sigur Skoska þjóð­ar­flokks­ins (SNP) í Skotlandi, þar sem hann hirti 56 af 59 sætum á breska þing­inu, gerði það að verkum að mörg stór nöfn í breskum stjórn­málum töp­uðu sætum sín­um. Og eðli­lega voru þing­menn­irnir flestir í fram­boði fyrir þá tvo flokka sem biðu afhroð í þing­kosn­ing­un­um, Verka­manna­flokk­inn og Frjáls­lynda demókrata. Business Insider tók saman lista yfir þá tíu stærstu.





  1. Jo Swin­son







Jo_Swinson_MP_at_Bournemouth

Jo Swin­son er atvinnu­mála­ráð­herra Frjáls­lyndra demókrata. Hún tap­aði sæti sínu til SNP, en ein­ungis með um tvö þús­und atkvæð­um. Swin­son hafði verið spáð miklum frama og þótti lík­leg sem næsti for­maður Frjáls­lyndra demókrata. Sá draumur virð­ist úti, að minnsta kosti um sinn.

 

Auglýsing




  1. Ed Davey







Ed Davey er orku­mála­ráð­herra Frjáls­lyndra demókrata. Hann hafði setið á þingi frá árinu 1997. Hann tap­aði sæti sínu til Íhalds­flokks­ins.





  1. Simon Hug­hes







Simon Hug­hes er dóms­mála­ráð­herra og hafði setið í 32 ár á þingi fyrir Frjáls­lynda demókrata. Hann missti sætið sitt, ótrú­legt en satt, til fram­bjóð­anda Verka­manna­flokks­ins.





  1. David Laws







David Laws. David Laws.

David Laws er mennta­mála­ráð­herra Frjáls­lyndra demókrata. Kjör­dæmi hans, Yeovil, hefur ára­tugum saman verið mjög sterkt vígi flokks­ins og sá sem sat í því á undan honum var Paddy Ashdown, fyrrum for­maður Frjáls­lyndra demókrata. Nú vermir Íhalds­þing­maður sæt­ið.

Laws vann í fjár­fest­inga­banka áður en hann tók sæti á þingi. Hann var einn þeirra þing­manna sem voru harka­lega gagn­rýndir eftir að upp­ljóstrað var um óhof­lega nýt­ingu þeirra á kostn­að­ar­greiðsl­um.





  1. Jim Murphy







Jim Murphy hefur verið leið­togi Verka­manna­flokks­ins í Skotlandi í tæpt ár. Hann, líkt og 40 aðrir þing­menn flokks­ins í Skotlandi, misstu starfið sitt í kosn­ing­un­um. Sæti hans fór auð­vitað til SNP.





  1. Esther McVey







Esther McVey er atvinnu­mála­ráð­herra Íhalds­flokks­ins og eina stóra nafn þess flokks sem féll í kosn­ing­unum í gær. Henni hafði verið spáð enn meiri frama innan flokks­ins en sá frami verður lík­ast til að bíða um sinn. Enda situr hún ekki lengur á þingi.





  1. Danny Alex­ander







Danny Alex­ander hefur sinnt und­ir­ráð­herra­emb­ætti í fjár­mála­ráðu­neyt­inu og situr á þingi fyrir Frjáls­lynda demókrata.  Hann var hluti af fjög­urra manna valdateymi innan síð­ustu rík­is­stjórnar sem mót­aði ákvörð­un­ar­töku í stórum mál­um, ásamt David Cameron for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herr­anum George Osborne og Nick Clegg, frá­far­andi leið­toga Frjáls­lyndra demókrata. Alex­ander var hins vegar þeirra ógæfu aðnjót­andi að vera þing­maður kjör­dæmis í Skotlandi, og að sjálf­sögðu hirti fram­bjóð­andi SNP sæti hans.





  1. Dou­glas Alex­ander







Mhairi Black. Mhairi Black.

Dou­glas Alex­ander var utan­rík­is­ráð­herra í skugga­ráðu­neyti Verka­manna­flokks­ins, og hefði orðið utan­rík­is­ráð­herra ef flokkur hans hefði endað í rík­is­stjórn. Sem­sagt mjög stór póli­tískur leik­ari. Alex­ander tap­aði sæti sínu í Skotlandi til Mhairi Black, tví­tugs fram­bjóð­anda SNP, sem fyrir vikið varð yngsti þing­maður Bret­lands í mörg hund­ruð ár.





  1. Vince Cable







Vince Cable var ráð­herra við­skipta í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og sat á þingi fyrir Frjáls­lynda demókrata. Hann er lík­lega stærsta nafn flokks­ins sem missti sæti sitt, enda oft verið nefndur sem mögu­legur næsti for­maður hans. Cable tap­aði sæti sínu til fram­bjóð­anda Íhalds­flokks­ins.





  1. Ed Balls







h_51896936 (1)

Ed Balls er fjár­mála­ráð­herra í skugga­ráðu­neyti Verka­manna­flokks­ins og hefði orðið fjár­mála­ráð­herra Bret­lands ef flokkur hans hefði kom­ist í stjórn. Sem­sagt næst stærsta póli­tíska stærðin innan flokks­ins á eftir Ed Milli­band, nú frá­far­andi for­manni hans. Balls hefur verið mjög áber­andi í breskum stjórn­málum árum saman og var lyk­il­maður í teym­inu á bak­við Gor­don Brown þegar sá var fjár­mála­ráð­herra. Hann er í raun búin að vera í fremstu vig­línu breskra stjórn­mála í meira en ára­tug og mjög áhrifa­mik­ill. Nú er hann atvinnu­laus.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None