Trump lofar að sekta Mexíkó fyrir innflytjendur og rústa Íslamska ríkinu

h_52009318-1.jpg
Auglýsing

Millj­arða­mær­ing­ur­inn og for­seta­fram­bjóð­and­inn Don­ald Trump er hvergi nærri hættur í stórum full­yrð­ingum og yfir­drifnu tali, þrátt fyrir að und­an­farnar vikur hafi hann verið mjög mikið gagn­rýnd­ur, sér­stak­lega fyrir það hvernig hann talar um inn­flytj­endur í Banda­ríkj­un­um.

Trump hélt ræðu fyrir stuðn­ings­menn sína í Phoenix í gær­kvöldi þar sem hann tal­aði í yfir klukku­stund, meðal ann­ars um það hvað hann sjálfur væri klár. „Þögli meiri­hlut­inn er kom­inn aftur og við ætlum að end­ur­heimta þetta land. Við ætlum að gera Banda­ríkin frá­bær á ný,“ sagði hann í tengslum við inn­flytj­enda­mál. Hann sagð­ist lofa því að sekta Mexíkó um hund­rað þús­und doll­ara fyrir hvern ein­stak­ling sem kæmi ólög­lega til Banda­ríkj­anna. Það yrði að stöðva ólög­lega inn­flytj­endur og hann væri fram­bjóð­and­inn sem myndi gera það. Hann sagð­ist líka geta „rú­stað“ Íslamska rík­inu með auknum her­afla.

Hópur fólks sem hlust­aði á ræðu­höldin voru mót­mæl­endur sem settu upp borða sem á stóð „hættu hatr­inu“ þegar Trump tal­aði um inn­flytj­end­ur. Stuðn­ings­menn hans umkringdu mót­mæl­end­urnar og örygg­is­verðir þurftu að grípa inn í. Trump sjálfur brást við mót­mæl­unum með því að spyrja hvort mexíkósk yfir­völd hefðu sent mót­mæl­end­urna. „Ég held það. Engar áhyggj­ur, við tökum landið okkar til bak­a,“ sagði hann svo við stuðn­ings­menn sína.

Auglýsing

Trump hefur und­an­farnar vikur tjáð sig mikið um inn­flytj­enda­mál, meðal ann­ars hefur hann sagt að ólög­legir inn­flytj­endur séu nauð­gar­ar, og ummæli hans hafa vakið mikla reiði. Fjöl­mörg fyr­ir­tæki hafa hætt við­skiptum við hann. Hann svar­aði þess­ari gagn­rýni í ræðu sinni í gær og kall­aði fyr­ir­tæki og ein­stak­linga öllum illum nöfnum fyrir gagn­rýn­ina.

„Fjöl­miðlar eru lygar­ar. Þetta er hræði­legt fólk. Hræði­leg­t,“ sagði hann líka. „Ekki all­ir, en marg­ir.“

And­stæð­ingar hans í Repúblikana­flokknum fengu líka sinn skammt af gagn­rýni, ekki síst Jeb Bush, sem Trump sagði hræði­legan og undrað­ist að þeir væru jafnir í skoð­ana­könn­un­um.

Allt útlit er fyrir að Trump verði meðal þeirra fram­bjóð­enda flokks­ins sem taka þátt í fyrstu kapp­ræð­unum fyrir for­val Repúblikana, en þær fara fram fyrstu vik­una í ágúst. Valið verður að miklu leyti byggt á nið­ur­stöðum skoð­ana­kann­ana, en Trump hefur verið að bæta við sig fylgi und­an­far­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None