Tveir einstaklingar voru handteknir á föstudaginn fyrir að reyna að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra. Vísir greinir frá þessu og segir að reynt hafi verið að kúga milljónir króna út úr honum.
Vísir segir að í bréfi sem hafi borist Sigmundi og fjölskyldu hans var þess krafist að þau myndu reiða fram nokkrar milljónir króna eða upplýsingar sem áttu að vera viðkvæmar fyrir þau yrðu gerðar opinberar.
Málið var strax tilkynnt til lögreglu, og hún réðist í umfangsmiklar aðgerðir sem leiddu til handtöku tveggja einstaklinga.
Friðrik Smári Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, vildi ekki tjá sig um málið við Vísi en sagði von á fréttatilkynningu frá lögreglu fyrir hádegi í dag. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar, sagðist ekki geta tjáð sig um málið heldur.