Hanna Birna krafði Stefán um skýringar á því sem hann sagði umboðsmanni

nefndarfundur_1024-1.png
Auglýsing

Í nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis kemur fram að Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, eða lög­maður á hennar vegum hafi krafið Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, um skýr­ingar á því sem hann greindi umboðs­manni Alþingis frá við frum­kvæð­is­at­hugun á sam­skiptum þeirra.

Í nið­ur­stöð­unni seg­ir: „Ég tel að það geti hvorki sam­rýmst sjón­ar­miðum um gagn­sæja stjórn­sýslu né laga­reglum sem eft­ir­lit umboðs­manns Alþingis bygg­ist á að ráð­herra eða lög­maður á hans vegum hafi beint sam­band við þann opin­bera starfs­mann sem veitt hefur umboðs­manni upp­lýs­ingar og krefji hann skýr­ingar á því sem hann hefur greint umboðs­manni frá. Eftir að umboðs­maður hefur tekið mál til skoð­unar eiga sam­skiptin að fara fram milli umboðs­manns og stjórn­valds­ins. Ég vænti þess að umfjöllun mín verði stjórn­völdum almennt í fram­tíð­inni til­efni til að gæta að þessum atriðum í störfum sín­um.“

Í sam­tali við Kjarn­ann sagði Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að hann muni ekki tjá sig frekar um rann­sókn leka­máls­ins.

Auglýsing

Fór á svig við lög um Stjórn­ar­ráð Íslands



Þá segir í nið­ur­stöðu umboðs­manns að Hanna Birna hafi ekki sýnt fram á að hún hafi fylgt lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands, í fram­göngu sinni við rann­sókn leka­máls­ins, nánar til­tekið 20. grein lag­anna þar sem segir að ráð­herra skuli leita álits ráðu­neytis til að tryggja að ákvarð­anir og athafnir hans séu lögum sam­kvæmt. „Ég beini þeim til­mælum til þess ráð­herra sem nú fer með inn­an­rík­is­ráðu­neytið að gætt verði að þessu atriði í starfi ráðu­neyt­is­ins fram­veg­is.“

Umboðs­maður Alþingis hefur komið ábend­ingum á fram­færi við Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, um fram­kvæmd og grund­völl siða­reglna fyrir ráð­herra, reglur um skrán­ingu form­legra sam­skipta og funda og hlut­verk og stöðu aðstoð­ar­manna ráð­herra. „Þær lúta einkum að því að þörf sé á að kanna betur almenna fram­kvæmd þess­ara reglna og eftir atvikum hvort þær megi gera skýr­ari.“

Þá segir umboðs­mað­ur: „Með vísan til þess eft­ir­lits­hlut­verks sem umboðs­manni Alþingis er falið með stjórn­sýsl­unni legg ég ríka áherslu á að afskipti ráð­herra sem fór með yfir­stjórn lög­regl­unnar af lög­reglu­rann­sókn saka­máls, sem tengd­ist honum sjálfum á til­tek­inn hátt og sú fram­ganga sem lög­reglu­stjór­inn lýs­ir, eru ekki aðeins and­stæð þeim reglum sem fjallað er um í álit­inu heldur eru þau einnig til þess fallin að gera þeim sem rann­saka saka­mál óhægt um vik að rækja það starf sitt í sam­ræmi við gild­andi regl­ur. Þær reglur miða að því að með saka­mála­rann­sókn sé hið sanna og rétta leitt í ljós og m.a. lagður grund­völlur að ákvörðun hand­hafa ákæru­valds um sak­sókn, sbr. 53. gr. laga nr. 88/2008, um með­ferð saka­mála. Þá eru slík afskipti almennt til þess fallin að skapa tor­tryggni um aðkomu ráð­herra að lög­reglu­rann­sókn­um, óháð því hvort það hafi orðið reyndin í þessu til­tekna máli.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None