Umfang fiskeldis nú orðið 13 prósent af öllum sjávarútveginum

Heildartekjur af fiskeldi á Íslandi námu 48 milljörðum króna í fyrra. Heilt yfir varð um 700 milljóna króna tap á rekstri í greininni á síðasta ári, samkvæmt greiningu frá Deloitte.

7DM_9723_raw_2224.JPG
Auglýsing

Tekjur í fisk­eldi á Íslandi hafa auk­ist jafnt og þétt á und­an­förnum árum og námu 48 millj­örðum króna á síð­asta ári, en heilt yfir varð 700 millj­óna króna tap á rekstri fisk­eld­is, sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr fisk­eld­is­gagna­grunni Deloitte, sem kynntar voru á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum 2022 sem fram fór í morg­un.

Umfang fisk­eldis af íslenskum sjáv­ar­út­vegi, sem hlut­fall af heild­ar­tekj­um, er nú orðið 13 pró­sent.

Sam­kvæmt því sem kom fram í máli Jónasar Gests Jón­as­son­ar, með­eig­anda hjá Deloitte sem kynnti töl­urnar á fund­inum í morg­un, má rekja tapið sem heilt yfir varð í grein­inni að mestu til tveggja fyr­ir­tækja, vegna tjóns sem rekja má til „sam­spilandi áhrifa af umhverf­is­á­hrif­um, sjúk­dóma í lífmassa sem og áhrifa heims­far­ald­urs­ins“.

Auglýsing

Gagna­grunn­ur­inn er þannig settur upp að horft er á rekstur fisk­eldi á Íslandi sem eina sam­stæðu. Þannig er leið­rétt fyrir áhrifum af eign­ar­haldi innan grein­ar­innar – þannig að ef félag A á félag B sem einnig er í fisk­eldi eru áhrif félags B á rekstur félags A ekki inni í grunn­in­um, því þá væri um tví­taln­ingu að ræða.

Fram­leitt magn hefur auk­ist veru­lega á síð­ustu árum, en árið 2018 voru um 19.100 tonn fram­leidd en á síð­asta ári nam fram­leiðslan 53.100 tonn­um.

Laun­þegar í grein­inni, sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr árs­reikn­ingum félag­anna, voru 597 tals­ins í fyrra. Það er aukn­ing um 38 pró­sent frá árinu 2017.

Bein opin­ber gjöld um 788 millj­ónir í fyrra

Sam­kvæmt útreikn­ingum Deloitte greiddu fisk­eld­is­fé­lög alls um 788 millj­ónir króna í bein opin­ber gjöld á síð­asta ári, þar af 414 millj­ónir í áætlað trygg­inga­gjald, 223 millj­ónir í tekju­skatt og 151 milljón í auð­linda­gjöld, gjalda vegna fisk­eldis í sjó og fram­laga í fisk­eld­is­sjóð.

Ein­ungis eitt félag í gagna­grunni Deloitte greiðir tekju­skatt, en önnur félög nýta upp­safnað tap fyrri ára á móti tekju­skatti eða eru enn í tap­rekstri.

Eigið fé í fisk­eldi nemur 56 millj­örðum króna og skuldir félag­anna eru sam­an­lagt 44 millj­arðar króna. Jónas Gestur sagði ljóst að hlut­hafar hefðu sett tölu­vert fé inn í grein­ina á árinu, enda hefði eigið fé verið 36 millj­arðar í lok árs 2020.

Jónas Gestur sagði efna­hags­reikn­ingur grein­ar­innar væri sterk­ur, og að ekki væri van­þörf á því í ungri grein sem væri í upp­bygg­ing­arfasa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent