Arðgreiðslur úr sjávarútvegi 18,5 milljarðar í fyrra

Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki högnuðust samanlagt um 65 milljarða króna í fyrra. Þar af voru 18,5 milljarðar króna greiddir út í arð til eigenda fyrirtækjanna. Bókfært eigin fé sjávarútvegsfélaga nam 353 milljörðum undir lok síðasta árs.

Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki högnuðust samanlagt um 65 milljarða króna á síðasta ári, samkvæmt því sem fram kemur í nýjum Sjávarútvegsgagnagrunni Deloitte.
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki högnuðust samanlagt um 65 milljarða króna á síðasta ári, samkvæmt því sem fram kemur í nýjum Sjávarútvegsgagnagrunni Deloitte.
Auglýsing

Arð­greiðslur til eig­enda íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja námu sam­an­lagt um 18,5 millj­örðum króna á árinu, en sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiddu 22,3 millj­arða króna í bein opin­ber gjöld árið 2021. Þar af greiddu fyr­ir­tækin í grein­inni 7,9 millj­arða í veiði­gjöld, 9,2 millj­arða í tekju­skatt og 5,2 millj­arða í áætlað trygg­inga­gjald.

Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki högn­uð­ust sam­an­lagt um 65 millj­arða króna á síð­asta ári. Heild­ar­tekjur félag­anna sem starfa í grein­inni voru 309 millj­arðar króna og juk­ust um 25 millj­arða frá fyrra ári, eða sem nemur 8,8 pró­sent­um.

Bók­fært eigið fé félaga í grein­inni jókst um 28 millj­arða króna á milli ára og nam 353 millj­örðum króna við árs­lok. Þá er um að ræða hreinar eignir fyr­ir­tækj­anna þegar búið er að greiða út arð og gera upp öll opin­bergjöld. Bók­fært fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hefur auk­ist um alls 132 millj­arða króna frá árinu 2014.

Þetta er á meðal þess sem kom fram í kynn­ingu Jónasar Gests Jón­as­sonar end­ur­skoð­anda hjá Deloitte, en hann kynnti hinn árlega Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunn Deloitte á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum 2022, sem fram fór í morgun á Hilton Nor­dica.

Auglýsing

Gagna­grunnur Deloitte nær á þessu ári utan um rekstur 94 pró­sent sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi en fjár­hæð­irnar hafa verið upp­reikn­aðar upp í 100 pró­sent til að end­ur­spegla öll fyr­ir­tækin í grein­inni.

Miklar geng­is­sveiflur

Fram­legð í sjáv­ar­út­vegi er mikil um þessar mundir í sögu­legu sam­hengi, sagði Jónas Gestur í kynn­ingu sinni, en EBITDA fram­legðin var 25 pró­sent á síð­asta ári.

Mikil sveifla varð á milli ára í geng­is­af­komu sjáv­ar­út­vegs­fé­laga, en eftir að hafa tapað 19 millj­örðum vegna geng­is­mis­munar árið 2020 högn­uð­ust íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki um 7 millj­arða króna vegna geng­is­breyt­inga á síð­asta ári.

Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Sam­herja hélt tölu í kjöl­far þess að Jónas Gestur fór yfir töl­urnar út gagna­grunni Deloitte og velti því þar upp að greina mætti þessar geng­is­sveiflur grein­ar­innar bet­ur, enda mun­ur­inn á afkomu 26 millj­arðar króna á milli ára.

Heild­ar­skuldir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja voru 457 millj­arðar króna við lok síð­asta árs og bættu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki við sig 21 millj­arði króna af nýjum lang­tíma­skuldum árið 2021, umfram afborg­an­ir. Heild­ar­skuldir geirans lækka þó á milli ára, í fyrsta sinn frá árinu 2017. Fjár­fest­ingar í var­an­legum fasta­fjár­munum námu 25 millj­örðum króna á síð­asta ári.

Veiði­gjöld frá 2016 undir helm­ingi af arð­greiðslum

Árið 2020 greiddu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki 21,5 millj­arða króna í arð, sem var hæsta upp­hæð sem greidd hafði verið út í arð úr grein­inni á einu ári. Inni í þeirri tölu voru rúm­lega 10 millj­arðar króna sem dótt­ur­fé­lög Sam­herji greiddu til móð­ur­fé­lags sam­stæð­unn­ar.

Arð­greiðsl­urnar á síð­asta ári voru sem áður segir 18,5 millj­arðar króna á síð­asta ára og lækka þannig um þrjá millj­arða króna á milli ára, en arð­greiðslur Síld­ar­vinnsl­unar í kjöl­far þess að félagið var skráð á hluta­bréfa­markað og seldi hlut sinn í Sjóvá spila þar stærstan þátt.

Heild­ararð­greiðslur út úr sjáv­ar­út­vegi frá byrjun árs 2016 og út síð­asta árs nema um 89 millj­örðum króna. Á sama tíma hafa fyr­ir­tækin í geir­anum greitt 43,8 millj­arða króna í veiði­gjöld, eða sem nemur rétt innan við helm­ingi þess fjár sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa greitt í arð­greiðsl­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnArnar Þór Ingólfsson
Meira úr sama flokkiInnlent