Upphafleg umsögn borgarinnar um afglæpavæðingu „óþarflega neikvæð“

Borgarfulltrúi Pírata óskaði eftir að Reykjvíkurborg uppfærði umsögn sína um frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta þar sem ekki kom nógu skýrt fram að borgin styðji frumvarpið.

Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata.
Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata.
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg hefur skilað inn upp­færðri umsögn um frum­varp um afglæpa­væð­ingu vörslu neyslu­skammta að frum­kvæði Alexöndru Briem, borg­ar­full­trúa Pírata.

Alex­andra segir í sam­tali við Kjarn­ann að upp­haf­leg umsögn borg­ar­inn­ar, sem er und­ir­rituð af borg­ar­rit­ara og unnin í sam­ráði við sam­ráðs­hóp Reykja­vík­ur­borgar um for­varnir og mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­skrif­stofu borg­ar­inn­ar, fari ekki saman við stefnu borg­ar­innar um skaða­minnkun í vel­ferð­ar­mál­um.

„Við hljótum að styðja þetta frum­varp. Það er að minnsta kosti gall­hörð afstaða Pírata og ég myndi ekki sætta mig við ef það ætti að breyta því án þess að ræða við mig,“ segir Alex­andra.

Auglýsing

Í upp­haf­legri umsögn borg­ar­inn­ar, sem hefur nú verið fjar­lægð af vef Alþing­is, eru gerðar nokkrar athuga­semdir við frum­varp­ið. Í umsögn­inni segir meðal ann­ars að gera megi ráð fyrir að frum­varp­ið, verði það að lög­um, muni bæta stöðu ein­hverra vímu­efna­neyt­enda en lík­legt sé að breyt­ing­arnar muni hafa áhrif á allt sam­fé­lag­ið. Borgin lýsir yfir áhyggjum af nei­kvæðum áhrifum á börn, ung­linga og for­eldra þeirra.

Þá segir borgin það gagn­rýn­is­vert að ekki sé sett fram heild­stæð stefna um for­varnir og aukna heil­brigð­is­þjón­ustu heldur eigi að bíða og sjá hver áhrif laga­breyt­ing­ar­innar verði.

Í umsögn­inni metur borgin það svo að með afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta megi gera ráð fyrir að aðgengi að vímu­efnum verði meira.

„Þó að það sé jákvætt að draga úr for­dómum og nei­kvæðu við­horfi til hópa sem neyta vímu­efna er áhyggju­efni að það hafi einnig jákvæð áhrif til vÍmu­efn­anna sjálfra í sam­fé­lag­inu og þá sér­stak­lega meðal ung­linga. Það hefur verið reynslan að jákvæð­ari við­horf geri það að verkum að fleiri prufi að nota efn­in, þá bæði full­orðnir og ung­ling­ar,“ segir í upp­haf­legu umsögn­inni, sem Alex­andra segir að hafi verið óþarf­lega nei­kvæð og lík­lega gætti mis­skiln­ings um til­gang lög­gjaf­ar­inn­ar.

Snýst um hvernig komið er fram við fólk í neyslu

„Þetta fjallar ekki um lög­leið­ingu almennt, þetta er ekki for­varna­mál og sam­an­burður við áfeng­is­kaupa­aldur er svo­lítið út úr kú líka þar sem þetta fjallar ekki um það held­ur. Þetta er ekki lög­leið­ing­ar­mál heldur snýst þetta um hvernig við höndlum fólk sem er í neyslu og hvort kerfið líti á þau sem glæpa­menn eða fólk sem þarn­ast félags­legrar þjón­ustu og heil­brigð­is­þjón­ust­u.“

Alex­andra segir að umsagn­ar­ferlið hafi ekki verið nógu skýrt. „Það var feng­inn hópur til að veita umsögn sem fór svo út en þetta fór aldrei fyrir póli­tík­ina. Við þurfum aðeins að skoða það í fram­tíð­inn­i.“

Auglýsing

Alex­andra kom að upp­færðri umsögn sem send var til vel­ferð­ar­nefndar Alþingis í gær. Þar er tekið fram að Reykja­vík­ur­borg styður frum­varp til afglæpa­væð­ingar vörslu neyslu­skammta, „enda er það í góðu sam­ræmi við sam­þykkta stefnu­mörkun borg­ar­innar þar sem áhersla er lögð á aðferða­fræði skaða­minnk­un­ar“.

Þau sem eru í nán­ari sam­skiptum við not­endur fái sæti í starfs­hópi ráð­herra

Í umsögn­inni er gerð athuga­semd við sam­setn­ingu starfs­hóps sem lagt er til að heil­brigð­is­ráð­herra skipi til að hafa eft­ir­lit með áhrifum og ávinn­ingi af afglæpa­væð­ingu vörslu neyslu­skammta vímu­efna. Borgin leggur til að full­trúar Rót­ar­innar - félags um vel­ferð og lífs­gæði kvenna, Frú Ragn­heiðar sem vinnur í miklu návígi við hóp vímu­efna­neyt­enda og VOR teymis vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar sem aðstoðar fólk sem er heim­il­is­laust og með vímu­efna­vanda og geð­vanda, eigi sæti í starfs­hópnum vegna inn­sýnar þeirra í áhrif frum­varps­ins.

Þá bendir borgin á að verði frum­varpið sam­þykkt er um nokkra stefnu­breyt­ingu að ræða og telur borgin eðli­legt að í kjöl­farið verði stefna stjórn­valda í mál­efnum áfeng­is- og vímu­efna end­ur­skoðuð heild­rænt til að gæta sam­ræm­is. Einnig færi vel á að gera áhættu­mat með til­liti til barna og ung­linga.

Frum­varpið var lagt fram á Alþingi í síð­asta mán­uði og er þetta í fjórða sinn sem Hall­dóra Mog­en­sen, þing­maður Pírata, leggur fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta.

Svan­­­­dís Svav­­­­­­­ar­s­dótt­ir, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, lagði fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­­­­skammta í apríl 2021 og byggði það að hluta til á vinnu við og umsögnum um frum­varp Hall­­­­dóru og með­­­­­­­flutn­ings­­­­fólks henn­­­­ar. Til stóð að end­­ur­flytja frum­varpið með breyt­ingum af Willum Þór Þór­s­­syni heil­brigð­is­ráð­herra á síð­­asta þingi. Frum­varpið var hins vegar fellt niður af þing­­mála­­skrá í mars.

Í svari ráðu­­­­neyt­is­ins til Kjarn­ans í vor vegna ákvörð­un­­­­ar­innar sagði að ráð­herra hefði ákveðið að vinna að frek­­­­ari útfærslu á frum­varp­inu, meðal ann­­­­ars með því að skil­­­­greina hug­takið neyslu­­­­skammt­­­­ur. Því hafi verið skip­aður starfs­hóp­­ur. Hann hefur verið að störfum frá því í febr­úar en ekki enn skilað til­lög­um.

Krist­ján Ernir Björg­vins­son á sæti í hópnum og sagði hann í sam­tali við Kjarn­ann um síð­ustu helgi að hann væri óviss hvort hópnum tak­ist ætl­un­ar­verk sitt, að skil­greina neyslu­skammta, ekki síst vegna tregðu lög­regl­unn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent